top of page

PÖNNUKÖKUR TOPPAÐAR MEÐ GRÍSKRI JÓGÚRT

  • Sep 15, 2025
  • 1 min read

Þessar lúxus pönnukökur eru tilvaldar í sunnudagsbrönsinn. Þær eru gerðar úr spelti, kókóspálmasykri og fleiri dásemdar hráefnum. Þær eru að lokum toppaðar með grískri jógúrt, bönunum, hlynsírópi og ofnbökuðum pekanhnetum. Þessi blanda passar mjög vel saman. Það er einnig gott að setja ber í staðin fyrir banana og aðrar hnetur í staðinn fyrir pekanhnetur. Mæli með að þið prófið þetta. Virkilega gott!



3 dl spelt

1 msk kókospálmasykur (eða önnur sæta, t.d. hunang)

1 tsk vínsteinslyftiduft

1/2 tsk salt

1 tsk vanilludropar

1 egg

2 msk ólífuolía

2 msk grísk jógúrt

2 1/2 dl mjólk

 

Toppið með:

Grísk jógúrt

1-2 bananar, skornir smátt

Hlynsíróp

Pekanhnetur, saxaðar


Aðferð

  1. Hrærið þurrefnunum saman. Hrærið svo næst restinni saman við.

  2. Steikjið við vægan hita á pönnu. Notið ausu til að skammta í litlar pönnukökur á pönnuna.

  3. Hrærið sírópi við pekanhneturnar. Ristið þær í ofni við 190°C í 5 mínútur. Passið að brenna þær ekki.

  4. Að lokum toppið með grískri jógúrt, bönunum, sírópi og ristuðum pekanhnetum.



Njótið vel! ❤️

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Comments


bottom of page