FRENCH TOAST MEÐ FERSKUM BERJUM
Hér kemur uppskrift að french toast með ferskum berjum, hlynsírópi og rjómaostablöndu. Geggjuð blanda og kjörið til að útbúa fyrir páskabrönsinn. Ég gerði þessa gómsætu uppskrift í samstarfi við Innnes. Ég nota fersk ber frá Driscoll’s en þau eru komin í nýjar og fallegar pappaöskjur sem innihalda minna plast og eru 100% endurvinnanlegar. Og ekki skemmir hvað berin eru virkilega bragðgóð. Rjómaostablandan passar mjög vel með en hún inniheldur Philadelphia rjómaost, hlynsíróp, vanilludropa og rjóma. Ég mæli mikið með þessari uppskrift.

6 þykkar súrdeigsbrauðsneiðar 6 egg
1 dl rjómi
2 msk hlynsíróp
1 msk púðursykur
1 tsk vanilludropar
2 tsk kanill
Smjör til steikingar
Toppa með:
Fersk ber frá Driscoll’s
Hlynsíróp
Rjómaostablanda
1 dolla hreinn Philadelphia rjómaostur
1 tsk vanilldropar
2 tsk hlynsíróp
1-2 tsk rjómi
Aðferð
Byrjið á því að skerasúrdeigsbrauð í rúmlega 2 cm þykkar sneiðar.
Hrærið saman egg, rjóma, hlynsíróp, púðursykur, vanilludropa og kanil. Hellið blöndunni í eldfast mót eða einhversskonar stórt ílát.
Blandið brauðsneiðunum saman við eggjablönduna og leyfið þeim að liggja í blöndunni í um 10 mínútur.
Á meðan er gott að skola berin og skera þau.
Blandið öllu í rjómaostablönduna vel saman í skál .
Steikið brauðsneiðarnar við vægan hita upp úr smjöri þar til þær verða eldaðar, gylltar og fallegar.
Toppið með rjómaostablöndunni, hlynsírópi og berjum eftir smekk. Njótið vel!

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments