top of page
Search


ÍSTERTA MEÐ JARÐARBERJUM & DAIM
Þessi klassíska og ljúffenga Daim ísterta sem mamma gerir svo oft en í aðeins öðruvísi búning. Ég einfaldaði aðeins með því að kaupa tilbúinn ís. Marengsbotn með möndlum sem minnir á sörur, rjómaís, stökkt Daim og fersk jarðarber. Fullkomin terta til að gera fyrirfram og geyma í frysti. Botn 3 eggjahvítur 150 g sykur 150 g saxaðar möndlur Fylling 1 stórt box vanillu rjómaís (700 g) 3–4 Daim plötur 150 g Driscoll’s jarðarber Til skrauts Jarðarber & saxað Daim Aðferð Hitið ofni


FRENCH TOAST MUFFINS
Það er eitthvað sérstaklega notalegt við að baka French Toast muffins. Ilmurinn af kanil og vanillu er aðeins of yndisleg! Þessi uppskrift er fullkomin í helgarbrönsinn, í kaffiboðið eða bara þegar þið viljið dekra við ykkur. Með ferskum Driscoll’s jarðarberjum og hindberjum fær rétturinn bæði ferskleika og lit, og ef þið viljið gera þetta enn betur við ykkur þá passar ískalt prosecco sérlega vel með. 260 g súrdeigsbrauð (eða fransbrauð), skorið í litla bita 4 stk egg ½ dl mj


BLÁBERJA- & SÍTRÓNUKAKA
Ótrúlega mjúk og bragðgóð kaka með fersku sítrónubragði, fullt af bláberjum og sítrónuglassúr. Fullkomin með kaffibolla, í helgarbaksturinn. 4,2 dl hveiti 2,4 dl sykur 2 tsk lyftiduft 1/4 tsk salt 2,4 dl hrein jógúrt 3 stór egg 2 tsk fínt rifinn sítrónubörkur 1/2 tsk vanilludropar 1,2 dl brætt smjör 2 tsk hveiti 2 dl bláber frá Driscoll's Sítrónuglassúr 2 dl flórsykur 2 msk sítrónusafi 1–2 msk mjólk (ef þarf) Aðferð Hitið ofninn í 200°C eða 180°C á blæstri. Klæðið ílangt form


RICOTTA PÖNNUKÖKUR MEÐ BLÁBERJUM & SÍTRÓNU
Við elskum þessar pönnukökur! Ricotta osturinn gerir þær svo mjúkar og léttar og bláberin með sítrónunni gefa þeim ótrúlega ferskt bragð. Mæli með að prófa þessar ef þið viljið eitthvað aðeins öðruvísi en þessar venjulegu pönnukökur. 2,4 dl hveiti 2 msk sykur 2 tsk lyftiduft ½ tsk salt 2 dl mjólk 85 g smjör, brætt 2 egg, aðskilin (hvítur og rauður í sitthvora skálar) 1 tsk vanilludropar 170 g ricotta ostur 1 tsk fínt rifin sítrónubörkur 150 g fersk Driscoll's bláber Aðferð: 1


PÁSKA OSTA-& BERJABAKKI
Hvernig væri að útbúa fallegan bakka um páskana með berjum, ostum, pönnukökum og fleira gómsætu? Bera það fram með ísköldu Cava og njóta í botn í fríinu. Fullkomið í páskabrönsinn, hittingana eða jafnvel sem forréttur. Það er auðvitað svo margt sem hægt er að nota á svona bakka en hér kemur mín hugmynd sem bragðaðist dásamlega. Punkturinn yfir i-ið eru litlu jarðarberjapönnukökurnar. Mæli með að bera þær fram með hlynsírópi sem hægt er að dýfa þeim í. 1/2 pkn jarðarber frá Dr


GULRÓTARBOLLAKÖKUR
Dúmjúkar gulrótarkökur með dásamlega góðu rjómaostakremi er dásamlega gott. Toppa þær síðan með pekanhnetum gerir kökurnar ennþá betri. Þessar kökur eiga eftir að klárast fljótt, það klikkar ekki hjá mér. Uppskriftin gerir 12 bollakökur 4 dl rifnar gulrætur 2 egg 1 tsk vanilludropar 1 ½ dl ólífuolía 2 ½ dl hveiti ½ tsk matasódi ½ tsk lyftiduft ¼ tsk salt 1 tsk kanill ¼ tsk engifer, ¼ tsk múskat, ¼ tsk negull 1 dl púðursykur ½ dl sykur 5-7 stk smátt saxaðar pekanhnetur 12 boll


PÁSKA EFTIRRÉTUR MEÐ HINDBERJUM & MINI EGGJUM
Fljótlegur og fallegur eftirréttur með marengs, hindberjum og Cadbury mini eggjum! Fullkominn fyrir páskana, allt sett í litlar skálar og toppað með Cadbury mini eggjum og bræddu hvítu súkkulaði. Þið getið keypt tilbúinn marengsbotn til að einfalda ferlið og einblínt á að njóta. Uppskrift fyrir 6 1 marengsbotn (tips: þægilegt að kaupa bara tilbúinn) 4 dl rjómi 125 g fersk hindber frá Driscoll’s (mest notuð stöppuð, smá tekin frá til að skreyta) 1 tsk vanilludropar 3 msk flórs


FRENCH TOAST MEÐ FERSKUM BERJUM
Hér kemur uppskrift að french toast með ferskum berjum, hlynsírópi og rjómaostablöndu. Geggjuð blanda og kjörið til að útbúa fyrir páskabrönsinn. Ég gerði þessa gómsætu uppskrift í samstarfi við Innnes. Ég nota fersk ber frá Driscoll’s en þau eru komin í nýjar og fallegar pappaöskjur sem innihalda minna plast og eru 100% endurvinnanlegar. Og ekki skemmir hvað berin eru virkilega bragðgóð. Rjómaostablandan passar mjög vel með en hún inniheldur Philadelphia rjómaost, hlynsíróp


SMÁKÖKUR MEÐ CADBURY MINI EGGJUM
Ef að þið elskið litlu súkkulaðieggin frá Cadburys þá munið þið elska þessar einföldu smákökur! Ég elska þegar Cadburys eggin eru komin í verslanir fyrir páskana og þá er tilvalið að skella í þessar smákökur því þær eru svo góðar! Kökurnar renna ljúflega niður með kaldri mjólk eða rjúkandi heitu kaffi. 200 g smjör við stofuhita 1 dl púðursykur 0,3 dl sykur 2 egg 1 tsk vanilludropar 4,7 dl hveiti 1 tsk matarsódi ½ tsk salt 3 pokar Cadbury mini egg Aðferð Byrjið á því að hræra


SÚKKULAÐIMÚS MEÐ DAIM
Það er svo þægilegt hvað þessi súkkulaðimús er fljótleg í bígerð en það er einungis fjögur hráefni í henni. Ég geri hana margoft sem eftirrétt í matarboðum og hún slær alltaf í gegn. Tilvalið að gera hana daginn áður. Mæli með að bera músina fram með ferskum berjum og jafnvel þeyttum rjóma. Hér toppa ég hana með litlum Cadbury súkkulaðieggjum, hindberjum og smá Daim Milka súkulaði. Fyrir 6 150 g Milka súkkulaði með Daim 2 msk smjör (30 g) 2 eggjarauður 1 ½ dl rjómi Aðferð Br


OFNBAKAÐ CROISSANT MEÐ JARÐARBERJUM OG RJÓMAOSTI
Gómsætur réttur sem er tilvalinn í sunnudagsbrönsinn, saumaklúbbinn, vinahittinga eða jafnvel í babyshower. Ofnbakað croissant með jarðarberjum, rjómaosti og toppað með hlynsírópi. Ljúfur réttur sem er sniðugt að skella í daginn áður form og baka morguninn eftir. Passar vel með ísköldu Prosecco eða jafnvel mímósu. 8 croissant 4 egg 2 dl nýmjólk 1 tsk vanilludropar 2 msk hlynsíróp 1/2 tsk kanill 1/4 tsk salt 150 g Philadelphia rjómaostur 400 g Driscolls jarðarber, skorin í bit
bottom of page