top of page

SMÁKÖKUR MEÐ CADBURY MINI EGGJUM

  • Jan 3
  • 1 min read

Ef að þið elskið litlu súkkulaðieggin frá Cadburys þá munið þið elska þessar einföldu smákökur! Ég elska þegar Cadburys eggin eru komin í verslanir fyrir páskana og þá er tilvalið að skella í þessar smákökur því þær eru svo góðar! Kökurnar renna ljúflega niður með kaldri mjólk eða rjúkandi heitu kaffi.


200 g smjör við stofuhita

1 dl púðursykur

0,3 dl sykur

2 egg

1 tsk vanilludropar

4,7 dl hveiti

1 tsk matarsódi

½ tsk salt

3 pokar Cadbury mini egg

Aðferð

  1. Byrjið á því að hræra saman smjör, púðursykur og sykur í hrærivél. Hrærið í nokkrar mínútur eða þar til hráefnin hafa blandast vel saman.

  2. Bætið eggjum og vanilludropum saman við og hrærið þar til blandan verður rjómakennd.

  3. Hrærið hveiti, matarsóda og salti saman við.

  4. Saxið 3 poka af Cadbury mini eggjum og takið smá til hliðar til að skreyta (má sleppa).

  5. Blandið mini eggjunum saman við deigið.

  6. Þekjið bökunarplötu með bökunarpappír og útbúið kúlur úr deiginu með höndunum (1 kúla = 1 ½ msk). 

  7. Dreifið kúlunum á bökunarpappírinn og þrýstið með skeið ofan á þær (passið að hafa smá bil á milli deigsins) Skreytið með mini eggjunum.

  8. Bakið við 180°C með blæstri í 8-10 mínutur og njótið.






Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page