top of page

SÚKKULAÐIBITASMÁKÖKUR MEÐ TAHINI

  • Jan 3
  • 1 min read

Þessar smákökur eru í hollari kantinum og koma svo sannarlega á óvart! Þær eru einfaldar í undirbúningi og passa einstaklega vel með kaffibolla eða ísköldu mjólkurglasi. Tahini eða sesamsmjör, sem er eitt af innihaldsefnunum, er m.a. ríkt af kalki og ýmsum steinefnum og gerir kökurnar næringarríkari fyrir vikið. Börnin elska þær og ég elska að gefa þeim eitthvað sætt sem er líka hollt og gott! Tahini-ið, hrásykurinn, hlynsírópið og súkkulaðið er frá þýska fyrirtækinu Rapunzel en það framleiðir gæða lífrænar fair trade matvörur.

250 g tahini frá Rapunzel 200 g hrásykur frá Rapunzel 60 ml hlynsíróp frá Rapunzel 2 tsk vanilludropar 1 egg ½ dl ólífuolía 250 g fínmalað spelt ¼ tsk lyftiduft ¼ tsk matarsódi 1 dl möndlumjólk eða mjólk 160 g 70% súkkulaði frá Rapunzel

Aðferð

  1. Byrjið á því að hræra saman tahini, sykri hlynsírópi, vanilludropum, eggi og ólífuolíu.

  2. Sigtið hveiti, matarsóda og lyftidufti og hrærið saman við.

  3. Hellið mjólkinni útí og hrærið öllu vel saman.

  4. Skerið súkkulaðið í bita og blandið við deigið.

  5. Útbúið kúlur úr deiginu með matskeið og dreifið á bökunarplötu þakta bökunarpappír.

  6. Bakið í ofni í 10-12 mínútur á 170°C á blæstri. Gott er að toppa með sjávarsalti.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page