HOLLARI NAMMIBITAR
- Jan 3
- 1 min read
Ég elska að eiga þessa dásamlega góðu nammibita í frystinum! Passa sérlega vel með kaffinu. Þeir innihalda döðlur, banana, möndlur, pekanhnetur, kókosflögur, hnetusmjör og súkkulaði. Það er svo geggjað að eiga til eitthvað sætt sem er í hollari kantinum.

10 stk döðlur, lagðar í bleyti í 30-40 mínútur
1 lítill banani
100 g möndlur
100 g pekan hnetur 1/2 dl ristaðar kókosflögur ½ krukka hnetusmjör (170 g) 1 msk kókosolía 100 g 70% súkkulaði
Aðferð
Blandið saman döðlum, banana, möndlum, pekanhnetum og kókosflögum í matvinnsluvél.
Smyrjið blöndunni á bökunarpappír og myndið ca. 22×20 ferhyrning. Gott að nota eldfast form.
Hitið hnetusmjörið og kókosolíuna í potti og hrærið þar til blandan er orðin mjúk.
Dreifið hnetusmjörinu ofan á og frystið í 30-60 mín.
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og dreifið yfir. Frystið í klst eða meira. Mér finnst best að hafa þetta vel frosið.
Í lokin skerið í litla bita og geymið í frystinum.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti











Comments