top of page
Search


JÓGÚRTBITAR MEÐ HINDBERJUM & JARÐARBERJUM
Fullkomið millimál eða sætt nammi sem geymist í frysti! Það er eitthvað við samsetningu af grískri jógúrt, ferskum berjum og smá súkkulaði sem gerir mann alveg háðan! Þessir jógúrtbitar eru ekki bara ótrúlega girnilegir heldur líka næringarríkir. Fullkomið til að grípa í þegar sykurpúkinn bankar upp á! 2 dl grísk jógúrt 125 g Driscoll’s hindber (stappa 8 stk, rest skorin í sneiðar) 8 Driscoll’s jarðraber, smátt skorin 1-2 msk hunang (eftir smekk) 1 msk chia fræ (eða 2 msk chi


SÚKKULAÐIBITASMÁKÖKUR MEÐ TAHINI
Þessar smákökur eru í hollari kantinum og koma svo sannarlega á óvart! Þær eru einfaldar í undirbúningi og passa einstaklega vel með kaffibolla eða ísköldu mjólkurglasi. Tahini eða sesamsmjör, sem er eitt af innihaldsefnunum, er m.a. ríkt af kalki og ýmsum steinefnum og gerir kökurnar næringarríkari fyrir vikið. Börnin elska þær og ég elska að gefa þeim eitthvað sætt sem er líka hollt og gott! Tahini-ið, hrásykurinn, hlynsírópið og súkkulaðið er frá þýska fyrirtækinu Rapunzel


HOLLARI NAMMIBITAR
Ég elska að eiga þessa dásamlega góðu nammibita í frystinum! Passa sérlega vel með kaffinu. Þeir innihalda döðlur, banana, möndlur, pekanhnetur, kókosflögur, hnetusmjör og súkkulaði. Það er svo geggjað að eiga til eitthvað sætt sem er í hollari kantinum. 10 stk döðlur, lagðar í bleyti í 30-40 mínútur 1 lítill banani 100 g möndlur 100 g pekan hnetur 1/2 dl ristaðar kókosflögur ½ krukka hnetusmjör (170 g) 1 msk kókosolía 100 g 70% súkkulaði Aðferð Blandið saman döðlum, banana,


GRANÓLA BITAR MEÐ MÖNDLUSMJÖRI
Gómsætir granóla bitar með höfrum, kókosflögum, möndlum, chia fræjum, hlynsýrópi, kókos- og möndlusmjöri, döðlum og toppaðir með súkkulaði. Þetta er mjög einfalt í undirbúningi og gott að eiga til fyrir krakkana eða sem millimál með kaffinu. Ég notaði vörur frá Rapunzel í bitana sem eru allar vandaðar, lífrænt vottaðar og fair trade. Kókos- og möndlusmjörið er í miklu uppáhaldi og setur punktinn yfir i-ið. Mér finnst það svo gott að ég gæti borðað það með skeið. Ég hvet ykkur


SÚKKULAÐI GRANÓLA BITAR
Fljótlegir og gómsætir granóla bitar sem innihalda aðeins fjögur hráefni en þeir innihalda haframjöl, hlynsíróp, súkkulaði og súkkulaðismyrju. Ég notað Vegan súkkulaði frá So Vegan So Fine sem er mjög gott. 2 dl súkkulaðiálegg með heslinhnetum frá So Vegan So Fine eða annað 1 dl hlynsíróp frá Rapunzel 6 dl haframjöl 80 g 70% súkkulaði frá Rapunzel Aðferð Hitið ofninn í 190°C með blæstri. Blandið saman súkkulaðiálegginu og sírópinu í skál. Fínmalið 2 dl af haframjölinu í bland


HOLLT DÖÐLUNAMMI „VIRAL DATE BARK“
Þetta döðlunammi fór algjörlega „viral“ á samfélagsmiðlunum. Ég varð að prófa að útbúa þetta sjálf og notaði ég aðeins fjögur innihaldsefni: Whole Earth hnetusmjörið, ferskar döðlur, 70% súkkulaði og saltaðar pistasíur. Pistasíurnar setja punktinn yfir-ið. Svo einfalt, gott og geggjað að eiga til í frystinum ef mann langar í eitthvað sætt! Ef þið hafið ekki smakkað þá mæli ég með. 30 ferskar döðlur Whole Earth hnetusmjör í túpu eftir smekk 100 g 70% súkkulaði ½ dl pistasíur
bottom of page