SÚKKULAÐI GRANÓLA BITAR
- Jan 3
- 1 min read
Fljótlegir og gómsætir granóla bitar sem innihalda aðeins fjögur hráefni en þeir innihalda haframjöl, hlynsíróp, súkkulaði og súkkulaðismyrju. Ég notað Vegan súkkulaði frá So Vegan So Fine sem er mjög gott.

2 dl súkkulaðiálegg með heslinhnetum frá So Vegan So Fine eða annað 1 dl hlynsíróp frá Rapunzel 6 dl haframjöl 80 g 70% súkkulaði frá Rapunzel
Aðferð
Hitið ofninn í 190°C með blæstri.
Blandið saman súkkulaðiálegginu og sírópinu í skál.
Fínmalið 2 dl af haframjölinu í blandara eða matvinnsluvél.
Blandið fínmalaða haframjölinu ásamt restinni af haframjölinu saman við súkkulaðiblönduna. Hrærið vel saman.
Smátt skerið súkkulaðið og bætið því saman við.
Dreifið og þjappið blöndunni í lítið eldfast form sem þið þekið með bökunarpappír og bakið í 16-20 mínútur.
Leyfið þessu að kólna aðeins áður en þið skerið í bita eftir smekk og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti











Comments