top of page

JÓGÚRTBITAR MEÐ HINDBERJUM & JARÐARBERJUM

  • Feb 8
  • 1 min read

Fullkomið millimál eða sætt nammi sem geymist í frysti! Það er eitthvað við samsetningu af grískri jógúrt, ferskum berjum og smá súkkulaði sem gerir mann alveg háðan! Þessir jógúrtbitar eru ekki bara ótrúlega girnilegir heldur líka næringarríkir. Fullkomið til að grípa í þegar sykurpúkinn bankar upp á!


2 dl grísk jógúrt 125 g Driscoll’s hindber (stappa 8 stk, rest skorin í sneiðar) 8 Driscoll’s jarðraber, smátt skorin 1-2 msk hunang (eftir smekk) 1 msk chia fræ (eða 2 msk chia fræ í vatni/kókosmjólk) 50 g dökkt súkkulaði, brætt 1 msk hnetusmjör

Aðferð:

  1. Byrjið á því að stappa 8 hindber og blandið saman við gríska jógúrt, hunang, og chia fræ í skál. Látið blönduna standa í nokkrar mínútur á meðan chia fræin þykkna smá.

  2. Hellið blöndunni í flatan bakka eða eldfast mót klætt bökunarpappír.

  3. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni (passið að hræra vel!).

  4. Dreifið súkkulaðinu og hnetusmjörinu yfir jógúrtblönduna með skeið.

  5. Smátt skerið jarðaber og restina ef hindberjunum. Dreifið berjunum jafnt yfir jógúrtblönduna.

  6. Frystið í að minnsta kosti 2 klst eða þar til bitarnir eru orðnir harðir. Þegar þeir eru tilbúnir, skerið í litla bita og njótið! Best er að geyma bitana í loftþéttu íláti í frystinum og taka út nokkrum mínútum áður en þeir eru borðaðir.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes


Comments


bottom of page