top of page
Search


JÓGÚRTBITAR MEÐ HINDBERJUM & JARÐARBERJUM
Fullkomið millimál eða sætt nammi sem geymist í frysti! Það er eitthvað við samsetningu af grískri jógúrt, ferskum berjum og smá súkkulaði sem gerir mann alveg háðan! Þessir jógúrtbitar eru ekki bara ótrúlega girnilegir heldur líka næringarríkir. Fullkomið til að grípa í þegar sykurpúkinn bankar upp á! 2 dl grísk jógúrt 125 g Driscoll’s hindber (stappa 8 stk, rest skorin í sneiðar) 8 Driscoll’s jarðraber, smátt skorin 1-2 msk hunang (eftir smekk) 1 msk chia fræ (eða 2 msk chi


BRUSCHETTUR MEÐ BURRATA & BERJUM
Bruschettur sem bragðast alveg dásamlega. Þær eru svo ferskar, sætar og bragðgóðar með burrata osti, hindberjum, brómberjum, hunangi og pistasíum. Tilvalið að bera fram í veislum eða sem forrétt. Svo er um að gera að njóta með ísköldu cava rosé, það passar mjög vel með. 24 sneiðar af súrdeigs baguette Ólífuolía 2 burrata ostar 1 box brómber frá Driscolls 2 box hindber frá Driscolls Hunang 2-3 msk smátt skornar pistasíur Aðferð 1. Dreifið baguette sneiðum á ofnplötu þaktri bök


HINDBERJAKOKTEILL
Einfaldur og bragðgóður kokteill með ljúffengri froðu og hindberjabragði. Hann inniheldur Cointreau, fersk hindber, lime, eggjahvítu, sódavatn og klaka. Hann hefur allt sem mér finnst best við kokteila. Sætt og súrt með froðu. Smá tips: Ef að þið viljið extra mikla froðu þá er geggjað að hrista kokteilinn fyrst án klaka, bæta síðan klökum saman við og hrista aftur. Algjört nammi! 1 kokteill 4 cl Cointreau 5 hindber frá Driscoll’s 1,5 cl safi úr lime 1 eggjahvíta Klakar 4 cl


OSTAKAKA MEÐ JARÐARBERJUM
Þessi ostakaka er fersk og á vel við sem eftirréttur eftir góða máltíð. Ég nota jarðarber frá Driscoll’s í uppskrifina en þau eru einstaklega bragðgóð og falleg. Hvítt súkkulaði gerir svo ostakökufyllinguna einstaklega ljúffenga. Það er algjör snilld að útbúa ostakökuna daginn áður, geyma í frysti og dreifa jarðaberjunum yfir áður en þið berið hana fram. 1 pkn Lu Digestive kex 120 g smjör 2 pkn Philadelphia rjómaostur 3,5 dl rjómi 2 tsk vanilludropar 100g hvítt súkkulaði 2 ms


JARÐARBERJARÓSIR
Jarðarberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn eða hvenær sem er. Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem er mjög ljúffengur 🌹 Eina sem þú þarft er: Grillspjót eða kokteilpinnar Borði Driscolls jarðarber Toblerone Aðferð Skerið í jarðarberin þannig að þau mynda rósir (sjá aðferð hér: www.instagram.com/reel/C3TYaBmoAcJ/ ). Skreytið pinnana með slaufum og stingið þeim í jarðarberin. Bræðið Toblerone yfir vatnsbaði og be


JARÐARBERJABOLLUR
Einfaldar og bragðgóðar vatnsdeigsbollur fylltar með jarðarberjarjóma og toppaðar með hvítu súkkulaði. Það er svo skemmtilegt að útbúa bollurnar sjálfur og bjóða í bolludagskaffi. En ef þið hafið ekki tíma til að baka bollurnar þá finnst mér líka sniðugt að kaupa þær tilbúnar út í búð og fylla þær sjálfur. Ég hvet ykkur til að prófa þetta. 200-250 g hvítt súkkulaði 500 ml rjómi 500 g jarðarber frá Driscolls (eitt stórt box) 3 msk flórsykur Aðferð Smátt skerið 200 g af jarðarb


VALENTÍNUSARPIZZA
Fullkomin hjartalöguð og rómantísk pizza fyrir valentínusardaginn eða konudaginn með Philadelphia rjómaosti, kokteiltómötum, basiliku, mozzarella, klettasalati, parmesan osti og stökkri parma skinku. Uppskrift að 12 tommu pizzu 4 msk Philadelphia rjómaostur með hvítlauk og kryddi 200 g kokteiltómatar 1-2 msk fersk basilika, smátt skorin 1-2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin Krydd: 1 tsk oregano, ½ tsk salt, ¼ tsk pipar 180 g litlar mozzarella kúlur 4 sneiðar parmaskinka Ólífuol


JARÐARBERJA BELLINI
Bellini er dásamlegur ítalskur freyðivínsdrykkur sem smellpassar í brönsinn eða bara sem ljúfur helgarkokteill. Venjulega inniheldur kokteillinn ferskjumauk en hér er hann með jarðarberjamauki. Jarðarber og freyðivín, er til eitthvað betra? Gefur mímósu ekkert eftir og mér finnst þessi drykkur eiginlega betri. Mæli með að þið prófið. Einn drykkur 1-2 dl Lamberti Prosecco 3 jarðarber 3 cl sykursíróp Aðferð Byrjið á því að blanda saman jarðaberjum og sykursírópi með töfrasprota
bottom of page