BRUSCHETTUR MEÐ BURRATA & BERJUM
- Feb 6
- 1 min read
Bruschettur sem bragðast alveg dásamlega. Þær eru svo ferskar, sætar og bragðgóðar með burrata osti, hindberjum, brómberjum, hunangi og pistasíum. Tilvalið að bera fram í veislum eða sem forrétt. Svo er um að gera að njóta með ísköldu cava rosé, það passar mjög vel með.

24 sneiðar af súrdeigs baguette
Ólífuolía
2 burrata ostar
1 box brómber frá Driscolls
2 box hindber frá Driscolls
Hunang
2-3 msk smátt skornar pistasíur
Aðferð
1. Dreifið baguette sneiðum á ofnplötu þaktri bökunarpappír. Hellið ólífuolíu jafnt yfir og bakið í 8-10 mínútur við 190°C á blæstri eða þar til sneiðarnar eru orðnar gylltar og stökkar.
2. Rífið burrata ostinn og dreifið jafnt yfir baguette sneiðarnar.
3. Smátt skerið brómber og hindber og raðið fallega á sneiðarnar.
4. Dreifið hunangi eftir smekk á bruschetturnar og toppið svo með smátt skornum pistasíum.





Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes













Comments