top of page
Search


ÍTALSKAR STEIKARLOKUR MEÐ BURRATA & ARRABIATA
Súrdeigsbrauð steikt upp úr smjöri, arrabiata sósa, parmesan og smjörsteiktur laukur, bakað í ofni og toppað með burrata, klettasalati, mínútusteik, litlum tómötum og ferskri basiliku. Allt sem ítölsk samloka á að vera. Hún er djúsí, einföld og algjör comfort bomba! Borðuðum þetta með góðu ítölsku rauðvíni og það klikkaði ekki! Uppskrift fyrir 4 (2 sneiðar á mann) 3 mínútusteikur (u.þ.b. 400–450 g samtals) Ólífuolía til steikingar Salt og pipar 2 laukar Smjör til steikingar (


BRUSCHETTUR MEÐ BURRATA & BERJUM
Bruschettur sem bragðast alveg dásamlega. Þær eru svo ferskar, sætar og bragðgóðar með burrata osti, hindberjum, brómberjum, hunangi og pistasíum. Tilvalið að bera fram í veislum eða sem forrétt. Svo er um að gera að njóta með ísköldu cava rosé, það passar mjög vel með. 24 sneiðar af súrdeigs baguette Ólífuolía 2 burrata ostar 1 box brómber frá Driscolls 2 box hindber frá Driscolls Hunang 2-3 msk smátt skornar pistasíur Aðferð 1. Dreifið baguette sneiðum á ofnplötu þaktri bök


PENNE PASTA MEÐ SALAMI, TÓMÖTUM & BURRATA
Hvað er betra en djúsí og ljúffengt pasta á svona dögum? Penne pasta með rjómaosti, hvítlauk, chili, ítölsku salami, ferskum tómötum, ferskri basilíku og burrata osti. Tekur enga stund að skella í þennan rétt. Sjóða pasta og græja sósuna á meðan. Blandar öllu saman og voila! Mæli með að bera fram með léttu og ljúffengu rauðvíni og nýbökuðu hvítlauksbrauði. Fyrir 3-4 300 g De Cecco penne pasta 2 msk ólífuolía 3 hvítlauksrif, kramin eða rifin 1 chili Salt og pipar 300 g kokteil


RISOTTO MEÐ TÓMÖTUM & BURRATA OSTI
Sumarlegt, létt og ljúffengt risotto með ferskum tómötum, kastaníusveppum, basilku og burrata osti. Óvá hvað þetta er góð samsetning. Ég elda grjónin með tómötunum og sveppunum sem gerir réttinn extra ljúffengan. Þið verðið hreinlega að prófa! Svo klikkar ekki að bera réttinn fram með ísköldu rósavíni og nýbökuðu hvítlauksbrauði. Fyrir 3-4 2 msk smjör 3-4 skarlottulaukar 3 hvítlauksrif 250 g kastaníusveppir 200-300 g litlir tómatar (kokteiltómatar eða marzanatómatar) 4 dl ar


TAGLIATELLE BOLOGNESE MEÐ BURRATA
Klassískt bolognese er alltaf gott og líklegt er að flestir lumi á góðri uppskrift. En mig langar engu að síður að deila minni útgáfu sem klikkar ekki. Ég set þetta klassíska í réttinn, nautahakk, lauk, gulrætur, sellerí og hvítlauk ásamt ljúffengri sósu frá Heinz með tómötum og chili. Leyfi þessu að sjálfsögðu að malla vel og lengi. Toppa svo réttinn með burrata osti, basilíku og parmesan sem gerir réttinn svo góðan. Mæli með að þið prófið þetta. De Cecco tagliatelle eftir s
bottom of page