BURRATA MEÐ TÓMÖTUM & PARMASKINKU
- Aug 13
- 1 min read
Einfaldur en einstaklega bragðgóður antipasto réttur sem hentar fullkomlega með ferskum sumarkokteil eins og t.d. þessum. Sætar ferskjur og kirsuber passa vel með rjómakenndri burrata og saltri parmaskinku. Fersk basilika, góð ólífuolía og örlítið chili toppa þetta svo fullkomlega. Berið fram sem forrétt eða þegar gesti ber að garði.

2 kúlur burrata
2 ferskjur
Fersk krisuber
Parmaskinka (1 bréf Citterio tagliofresco parmaskinka D.O.P)
Litlir tómatar (Sólskinstómatar)
Fersk basilika
Góð ólífuolía
Salt og pipar
Chili flögur
Súrdeigsbrauð eða annað gott brauð
Aðferð
Skerið tómatana í tvennt og ferskjurnar í sneiðar. Skerið kirsuberin í tvennt og fjarlægið steinana.
Raðið tómötum, ferskjum, kirsuberjum og parmaskinku fallega á stóran disk eða bakka.
Rífið burrata-kúlurnar varlega í sundur og komið þeim fyrir á disknum.
Bætið ferskri basiliku yfir og dreypið vel af góðri ólífuolíu yfir burrata og tómata.
Kryddið með salti, pipar og chiliflögum eftir smekk.
Berið fram með góðu grilluðu, steiktu eða ofnbökuðu súrdeigsbrauði.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Krónuna



Comments