top of page
Search


JARÐARBERJA- & BASIL MARGARITA
Ferskur, litríkur og ómótstæðilega góður drykkur. Blanda af sætum jarðarberjum, basilíku og klassísku margaritu bragði. Ótrúlega bragðgóður og sumarlegur drykkur. Fyrir einn kokteil 60 ml tequila 30 ml safi úr lime 30 ml Cointreau 1 tsk hunang 4–5 Driscoll’s jarðarber, skorin í tvennt 4 fersk basilíku lauf Klakar Fyrir glasbrúnina: Gróft salt Lime til að bleyta glasið Aðferð: Byrjið á að væta glasbrúnina með lime báti og dýfið í salt ef þið viljið saltkant. Setjið jarðarber


ÍTALSKAR STEIKARLOKUR MEÐ BURRATA & ARRABIATA
Súrdeigsbrauð steikt upp úr smjöri, arrabiata sósa, parmesan og smjörsteiktur laukur, bakað í ofni og toppað með burrata, klettasalati, mínútusteik, litlum tómötum og ferskri basiliku. Allt sem ítölsk samloka á að vera. Hún er djúsí, einföld og algjör comfort bomba! Borðuðum þetta með góðu ítölsku rauðvíni og það klikkaði ekki! Uppskrift fyrir 4 (2 sneiðar á mann) 3 mínútusteikur (u.þ.b. 400–450 g samtals) Ólífuolía til steikingar Salt og pipar 2 laukar Smjör til steikingar (


RJÓMALAGAÐ PASTA MEÐ SÓLÞURRKUÐUM TÓMÖTUM
Þessi réttur er einfaldur og dásamlega góður, fullkominn í haust þegar manni langar í eitthvað djúsí og gott. Rjómalagað pasta með sólþurrkuðum tómötum, sveppum og kjúklingi. Rétturinn er einnig ljúffengur án kjúklings, ef þú vilt léttari útgáfu. Passar fullkomlega með rauðvínsglasi og fersku salati. Fyrir 3-4 300-400 g De Cecco penne rigate pasta 3 bringur Kjúklingur + 1 tsk salt + 1/4 tsk pipar Ólífuolía 1 Laukur 3-4 hvítlauksrif 200 g Sveppir 1 dl sólþurrkaðir tómatar 250


RISOTTO MEÐ TÓMÖTUM & BURRATA OSTI
Sumarlegt, létt og ljúffengt risotto með ferskum tómötum, kastaníusveppum, basilku og burrata osti. Óvá hvað þetta er góð samsetning. Ég elda grjónin með tómötunum og sveppunum sem gerir réttinn extra ljúffengan. Þið verðið hreinlega að prófa! Svo klikkar ekki að bera réttinn fram með ísköldu rósavíni og nýbökuðu hvítlauksbrauði. Fyrir 3-4 2 msk smjör 3-4 skarlottulaukar 3 hvítlauksrif 250 g kastaníusveppir 200-300 g litlir tómatar (kokteiltómatar eða marzanatómatar) 4 dl ar


TAGLIATELLE BOLOGNESE MEÐ BURRATA
Klassískt bolognese er alltaf gott og líklegt er að flestir lumi á góðri uppskrift. En mig langar engu að síður að deila minni útgáfu sem klikkar ekki. Ég set þetta klassíska í réttinn, nautahakk, lauk, gulrætur, sellerí og hvítlauk ásamt ljúffengri sósu frá Heinz með tómötum og chili. Leyfi þessu að sjálfsögðu að malla vel og lengi. Toppa svo réttinn með burrata osti, basilíku og parmesan sem gerir réttinn svo góðan. Mæli með að þið prófið þetta. De Cecco tagliatelle eftir s


KJÚKLINGUR MEÐ PARMASKINKU & MOZZARELLA
Ég sá þessa girnilegu uppskrift frá Donna Hay og ég varð bara að prófa að útbúa mína útgáfu og vá hvað þetta er gómsætur réttur! Kjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inní parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni. Fyrir fjóra 4 kjúklingabringur frá Rose Poultry 16 basilíku laufblöð 8 sneiðar ferskur mozzarella Pipa


OFNBAKAÐAR KJÖTBOLLUR MEÐ SPAGHETTI
Hér kemur uppskrift að ljúfum „comfor“ rétti. Ítalskar kjötbollur með pestó, dásamlegri sósu og spaghetti bakað í ofni með ferskum mozzarella og toppað með basiliku. Punkturinn yfir i-ið er að setja pestó með sólþurrkuðum tómötum í kjötbollurnar. Nammi! Mér finnst frábært að elda ríflegan skammt og eiga í hádegismat daginn eftir. Þessi uppskrift hentar vel í tvær máltíðir fyrir tvo fullorðna og tvö börn. Uppskrift fyrir fjóra til fimm fullorðna 800 g nautahakk ½ krukka pestó


STÖKKT BRAUÐ MEÐ MOZZARELLA, TÓMÖTUM & BASILIKU
Ef að ykkur langar í dásamlegan forrétt sem er bæði léttur og bragðgóður þá er þetta algjörlega málið! Svo ljúffengt, stökkt og einfalt að útbúa. Ég hef bæði notað súrdeigsbrauð (á það nánast alltaf til í frystinum) eða pretzel. Ég sker brauðið smátt og baka í ofni þar til það verður stökkt. Ber svo fram með ferskum mozzarella, litlum tómötum, ólífuolíu og basilíku. Fyrir 4 2-3 súrdeigsbrauðsneiðar eða 1 pretzel (keypti í Gulla bakara) Krydd: salt, hvítlauksduft, laukduft, ca


BASIL GIMLET
Basil gimlet er svo ferskur og góður kokteill. En svo skemmir ekki hvað það er einfalt að útbúa hann. Hann hefur lengi verið vinsæll á Íslandi og núna loksins ætla ég að deila með ykkur uppskrift. Þetta er klassískur gimlet kokteill sem inniheldur gin, lime safa, sykursíróp og svo punkturinn yfir i-ið er fersk basilika. Ef að þið hafið ekki prófað hann þá mæli ég mikið með að þið gerið það. 1 drykkur 6 basiliku laufblöð 6 cl Roku gin 3 cl sykursíróp 3 cl safi úr lime Klakar A


TÓMATSÚPA MEÐ FERSKUM MOZZARELLA & BASILIKU
Ljúffengt tómatsúpa sem iljar manni. Hún inniheldur gulrætur sem gerir súpuna einstaklega góða. Toppurinn yfir i-ið er að rífa ferskan mozzarella og dreifa yfir súpuna rétt áður en þið borðið hana. Svakalega gott. Mæli með að bera þetta fram með góðu brauði. Uppskrift fyrir 3-4 1/2 laukur 4-5 gulrætur, skornar í bita 400 g plómutómatar í dós 2 msk tómatpúrra 2 hvítlauksrif 2 tsk grænmetiskraftur 4 dl vatn 1-2 dl vatn (meira vatn) 1 ½ dl rjómi Salt og pipar Cayenne pipar Toppa


ÍTALSKAR KJÖTBOLLUR & PARMESAN KARTÖFLUMÚS
Þessar kjötbollur klikka ekki. Einfaldar og fljótlegar ítalskar kjötbollur bakaðar í ofni með ferskum mozzarella og bornar fram með parmesan kartöflumús. Kjötbollurnar eru bragðgóðar og ekki skemmir fyrir að þær eru bakaðar í ofni með tómat passata og ferskum mozzarella. Toppaðar með ferskri basilíku sem setur punktinn yfir i-ið. Einnig er gott að bera kjötbollurnar fram með spaghettí í staðinn fyrir kartöflumús. Uppskrift gerir 20-24 kjötbollur 500 g nautahakk 1 egg 1/2 lau


PÍTA MEÐ HUMRI, BEIKONI & BASIL SÓSU
Humar og beikon í brauði með guðdómlegri sósu, þarf eitthvað að segja meira? Innblásturinn að uppskriftinni er samloka sem fékkst á Rabbarbarnum en sá staður er því miður hættur og verður sárt saknað. Fyrir 3-4 Pítubrauð frá Hatting 500 g skelflettur humar, frosinn 2-3 msk fersk steinselja, söxuð 2 lítil hvítlauksrif, pressuð 1 msk ferskur sítrónusafi 1-2 msk Ólífuolía Salt og pipar Smjör til steikingar 8-12 sneiðar af beikoni (eftir smekk) Kokteiltómatar, skornir í sneiðar K


PARMESAN KJÚKLINGUR
Hér kemur mín útgáfa af Parmesan kjúklingi eða hinum þekkta rétti „Chicken parmigiana” og vá hvað hann var góður. Þetta er ekta „comfort food“ réttur og inniheldur hann pasta, kjúkling í parmesan raspi, ferskan mozzarella og tómatbasil sósu. Uppskrift fyrir þrjá 3 kjúklingabringur Salt og pipar 2-3 msk hveiti 50 g smjör, skorið í teninga 1 stórt egg 2 dl pankó rasp (fæst t.d. í Hagkaup, Krónunni og Nettó) 1 dl ferskur parmesan ostur, rifinn Salt og pipar Sósa Tilbúin tómatssó


FERSKT TORTELLINI & BRUSCHETTUR
Þetta pasta hef ég margoft gert og er einum of gott til þess að deila ekki uppskriftinni með ykkur. Ég keypti ferskt tortellini með spínat og ricotta sem fæst í öllum helstu verslunum. Pasta sósa frá Olifa (eða önnur sambærileg) ásamt rjóma, spínati, parmesan, ferskri basiliku og rauðu pestói. Útkoman er rosalega góð. Uppskriftin er tilvalin fyrir grænmetisætur. Ef að þið eruð pasta unnendur þá mæli ég mikið með. Fyrir 2-3 500 g tortellini með spínati og ricotta 1/3 tómatsósa


BRUSCHETTUR MEÐ RJÓMAOSTI & OFNBÖKUÐUM TÓMÖTUM
Ristaðar bruschettur með hvítlauks-og kryddjurta rjómaosti, ofnbökuðum kokteiltómötum og ferskum kryddjurtum. Nammi! Svo ótrúlega bragðgott og ljúft með köldu hvítvínsglasi. Ekta til þess að bera fram í matarboðum, sem forrétt, saumaklúbbshittingum eða sem meðlæti með góðu pasta. 1 baguette brauð, ég keypti súrdeigs Philadelphia rjómaostur með hvítlauk 1 dl ólífuolía + 1 msk ólífuolía 3 hvítlauksrif 200-250 g kokteiltómatar 2 msk ferskt oregano, smátt skorið eða 1 msk þurrkað
bottom of page