PARMESAN KJÚKLINGUR
- Jan 1
- 2 min read
Hér kemur mín útgáfa af Parmesan kjúklingi eða hinum þekkta rétti „Chicken parmigiana” og vá hvað hann var góður. Þetta er ekta „comfort food“ réttur og inniheldur hann pasta, kjúkling í parmesan raspi, ferskan mozzarella og tómatbasil sósu.

Uppskrift fyrir þrjá 3 kjúklingabringur Salt og pipar 2-3 msk hveiti 50 g smjör, skorið í teninga 1 stórt egg 2 dl pankó rasp (fæst t.d. í Hagkaup, Krónunni og Nettó) 1 dl ferskur parmesan ostur, rifinn Salt og pipar
Sósa Tilbúin tómatssósa með basiliku (ég notaði frá Olifa) 2 msk parmesan ½-1 tsk hungang 1-2 hvítlauksrif Salt og pipar Cayenne pipar
Ferskur mozzarella, 2 kúlur Rigatoni Fersk steinselja eða basilika
Aðferð
Skerið bringurnar í tvennt svo úr verði tvær sneiðar.
Hrærið saman rifnum parmesan osti og raspi í skál.
Veltið kjúklingnum uppúr hveiti, salti og pipar. Því næst veltið þeim upp úr eggi og svo að lokum parmesan og panko raspinum.
Dreifið helmingnum af smjörinu í botninn á eldföstu móti. Leggið bringurnar ofan á og að lokum dreifið restinni af smjörinu yfir. Bakið í ofni í 20 mín við 200°C.
Á meðan kjúklingurinn bakast þá er gott að gera sósuna. Blandið saman tilbúnu sósunni, parmesan osti, hunangi, pressuðu hvítlauksrifi, cayenne pipar, salti og pipar. Endilega smakkið ykkur til.
Skerið mozzarella í sneiðar og dreifið honum yfir kjúklinginn og hellið svo sósunni yfir. Bakið í 10 mínútur í viðbót eða þar til osturinn er bráðnaður og kjúklingurinn er tilbúinn.
Á meðan kjúklingurinn er að bakast í ofninum þá er gott að sjóða rigatoni eftir leiðbeiningum á pakkningu.
Toppið svo í lokin með ferskri basiliku eða steinselju og berið fram með rigatoni, restinni af sósunni og meiri parmesan osti.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments