top of page

MAC AND CHEESE MEÐ FERSKUM ASPAS

  • Jan 1
  • 1 min read

Makkarónur og ostur með ferskum aspas, steinselju og chili flögum. Þetta finnst mér nánast vera hinn fullkomni „comfort food“ réttur. Fljótlegur, góður og djúsí réttur sem börnin elska. Ferskur aspas gerir hann extra ljúffengan og passar sérlega vel með! Ekki skemmir að þetta er afar einfaldur réttur og það eina sem þarf að gera er að sjóða makkarónurnar, útbúa sósuna, blanda öllu saman og baka inn í ofni. Ekkert að skera nema aspasinn.

Fyrir 2 200 g makkarónur 20 g smjör 20 g hveiti 2 dl nýmjólk 1 dl rjómi 200 g rifinn cheddar ostur 1 dl rifinn parmesan ostur + ½ dl til að dreifa yfir 2 msk rjómaostur Cayenne pipar Salt og pipar Panko rasp

Toppað með Ferskum aspas Steinselju Chili flögum Meiri parmesan

Aðferð

  1. Sjóðið makkarónurnar eftir leiðbeiningum.

  2. Bræðið smjör og mjólk í potti við vægan hita. Hellið hveitinu út í og hrærið þar til blandan verður þykk.

  3. Bætið ostinum saman við og hrærið þar til osturinn er bráðnaður. Kryddið eftir smekk.

  4. Hrærið makkarónunum út í ostinn og setjið í eldfast form. Dreifið panko raspi og parmesan osti yfir.

  5. Bakið í 10 mínútur við 200°C eða þar til raspið er orðið gyllt.

  6. Skerið ferskan aspas í bita og steikið upp úr olíu. Kryddið með salt og pipar.

  7. Berið makkarónurnar fram með aspasnum, meiri parmesan, chili flögum og ferskri steinselju. Hver og einn fær sér svo á sinn disk.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page