top of page

STÖKKT BRAUÐ MEÐ MOZZARELLA, TÓMÖTUM & BASILIKU

  • Jan 1
  • 1 min read

Ef að ykkur langar í dásamlegan forrétt sem er bæði léttur og bragðgóður þá er þetta algjörlega málið! Svo ljúffengt, stökkt og einfalt að útbúa. Ég hef bæði notað súrdeigsbrauð (á það nánast alltaf til í frystinum) eða pretzel. Ég sker brauðið smátt og baka í ofni þar til það verður stökkt. Ber svo fram með ferskum mozzarella, litlum tómötum, ólífuolíu og basilíku.

Fyrir 4 2-3 súrdeigsbrauðsneiðar eða 1 pretzel (keypti í Gulla bakara) Krydd: salt, hvítlauksduft, laukduft, cayenne pipar 2-3 msk ólífuolía og meira til að toppa réttinn með Litlir tómatar td. Kokteiltómatar eða medley tómatar 1 fersk mozzarella kúla Fersk basilíka eftir smekk Chili flögur og pipar

Aðferð

  1. Skerið brauðið í litla teninga. Blandið saman við ólífuolíu og kryddi.

  2. Dreifið brauðinu á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í ofni við 190°C í 10 mínútur eða þar til brauðið er orðið stökkt. Passið að brenna ekki brauðið.

  3. Skerið tómatana í tvennt.

  4. Dreifið brauðinu í skál eða á djúpan disk og dreifið tómötunum yfir.

  5. Rífið mozzarella í smáa bita og dreifið yfir.

  6. Toppið með ólífuolíu, pipar, chili flögum og nóg af basilíku eftir smekk.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page