top of page
Search


RISARÆKJU SNITTUR MEÐ TABASCO SÓSU
Þennan frábæra forrétt fyrir hátíðirnar útbjó ég í samstarfi við Innnes. Risarækjur í Tabasco ofan á súrdeigs baguette með tómötum, avókadó, salati og ljúffengri sósu. Leikur við bragðlaukana! Mæli með að bera fram með ísköldu Cava og njóta í botn! 32 risarækjur (í kringum 270 g) 1 msk Tabasco sósa Hvítlauksduft, laukduft, salt & pipar 1 msk ólífuolía 16 sneiðar af súrdeigs baguette 40 g smjör + 2 hvítlauksrif 150 g tómatar medley eða kirsuberja 1 avókadó Salat Steinselja Sós


STÖKKT BRAUÐ MEÐ MOZZARELLA, TÓMÖTUM & BASILIKU
Ef að ykkur langar í dásamlegan forrétt sem er bæði léttur og bragðgóður þá er þetta algjörlega málið! Svo ljúffengt, stökkt og einfalt að útbúa. Ég hef bæði notað súrdeigsbrauð (á það nánast alltaf til í frystinum) eða pretzel. Ég sker brauðið smátt og baka í ofni þar til það verður stökkt. Ber svo fram með ferskum mozzarella, litlum tómötum, ólífuolíu og basilíku. Fyrir 4 2-3 súrdeigsbrauðsneiðar eða 1 pretzel (keypti í Gulla bakara) Krydd: salt, hvítlauksduft, laukduft, ca


OSTAKÚLA MEÐ PEKANHNETUM
Gómsæt ostakúla úr Philadelphia rjómaosti með sweet chili, rauðlauk, sólþurrkuðum tómötum, pimiento papriku og ristuðum pekanhnetum. Ég hef oft útbúið ostakúlu en þessi útgáfa er alveg tryllingselega góð! Svo er hún geggjuð á ostabakkann um áramótin eða yfir hátíðarnar. Mæli með að bera fram með ljúffengu freyðivíni. 2 dl pekanhnetur 40 ml síróp 2 msk ólífuolía 1 og ½ pkn Sweet chili Philadelphia rjómaostur 1-2 msk smátt skorinn rauðlaukur 3 msk smátt skornir sólþurrkaðir tóm


LJÚFFENG HUMARSÚPA
Klassísk og ljúffeng humarsúpa. Það besta við hana er að hún er jafnvel ennþá betri daginn eftir. Þá er gott að sleppa því að setja humarinn út í súpuna og setja hann ofan í áður en þið berið hana fram. Fullkomið að útbúa þessa súpu á Þorláksmessu og bera hana fram sem forrétt á aðfangadag. En ef að þið viljið meiri mátlítð úr súpunni þá mæli ég með að bæta við meiri humar í súpuna. Mér finnst humarkrafturinn frá Oscar og smá red curry frá Blue dragon setja punktinn yfir i-ið


BRUSCHETTUR MEÐ RJÓMAOSTI & OFNBÖKUÐUM TÓMÖTUM
Ristaðar bruschettur með hvítlauks-og kryddjurta rjómaosti, ofnbökuðum kokteiltómötum og ferskum kryddjurtum. Nammi! Svo ótrúlega bragðgott og ljúft með köldu hvítvínsglasi. Ekta til þess að bera fram í matarboðum, sem forrétt, saumaklúbbshittingum eða sem meðlæti með góðu pasta. 1 baguette brauð, ég keypti súrdeigs Philadelphia rjómaostur með hvítlauk 1 dl ólífuolía + 1 msk ólífuolía 3 hvítlauksrif 200-250 g kokteiltómatar 2 msk ferskt oregano, smátt skorið eða 1 msk þurrkað


ÓMÓTSTÆÐILEGAR AVÓKADÓ VORRÚLLUR
Það eru örugglega fleiri en ég sem elska „avocado eggroll“ á Cheesecake factory í Bandaríkjunum. En sá réttur er fyrirmyndin af þessari uppskrift. Vorrúllur fylltar með avókadó, tómötum, kóíander og blaðlauki bornar fram með gómsætri . Það er svo lítið mál að gera þetta og ég mæli með að þið prófið. Þetta er ótrúlega gott! Uppskrift gerir 6 vorrúllur 2 stór avókado (eða 3 lítil avókadó) 1-2 tómatar 2 msk kóríander 3 msk blaðlaukur Safi úr ½ lime Chili flögur Salt og pipar Egg


DÁSAMLEGUR BRUSCHETTA BAKKI
Hvað er betra en dásamlegur bakki stútfullur af grilluðum bruchettum ásamt allskonar góðgæti og ískalt Prosecco rosé með? Bruschettur með þeyttum fetaosti, jarðaberjum og fíkjum og bruschettur með ferskum mozzarella, tómötum, basiliku og hráskinku. Fullkomin blanda og gaman að raða þessu fallega upp á bakka. Það er líka svo gaman að skála í fallegum glösum en þessi eru úr Heimahúsinu og fást hér. 1-2 bruschetta brauð (ég keypti súrdeigs) ½ dl ólífuolía 2 hvítlauksrif, rifin e


RISARÆKJUKOKTEILL MEÐ AVÓKADÓ
Þessi útgáfa af klassískum rækjukokteil er aðeins öðruvísi og slær alltaf í gegn. Ljúffengur réttur sem hentar sérlega vel sem forréttur um jólin og áramótin. Þetta hefur verið fastur réttur á mínum matseðli um áramót og er alltaf jafn gott! Avókadó og risarækjur með chili og hvítlauk, þessi hráefni smellpassa saman og ekki skemmir að þetta er bráðhollt. Hvítvín passar svo sérlega vel með. Mæli mikið með! Uppskrift fyrir 4 2 avókadó 12 stórar tígrisrækjur, óeldaðar 1/2 chili1


RISARÆKJUR Í KRÖNSI MEÐ AVÓKADÓ DILL SÓSU
Uppskrift að afar góðum risarækjum í snakk krönsi sem eru bornar fram með avókadó sósu með dilli og sýrðum rjóma. Tilvalið sem aðeins öðruvísi forréttur eða léttur réttur yfir hátíðarnar. Ég þakti rækjurnar með hummus snakki frá Eat real með dill bragði sem passar sérlega vel með risarækjunum. Snakkið er gert úr kjúklingabaunum og er einnig ótrúlega gott eitt og sér. Það er vegan, glúten frítt og 40% fituminna en venjulegt snakk. 600 g stórar tígrisrækjur frá Sælkerafiski 8 d


LJÚFFENGT BRIOCHE BRAUÐ MEÐ ÞEYTTUM RICOTTA
Dúnmjúkt og bragðgott brioche brauð og þeyttur ricotta ostur með ofnbökuðum tómötum. Þegar ég fór til Berlínar um miðjan október þá fékk ég alveg dásamlegt brioche brauð með þeyttum osti. Ég hef ekki hætt að hugsa um þetta síðan og ég varð að prófa að útbúa svona sjálf. Ég leitað eftir góðri uppskrift og datt inn á þessa eftir einn af mínum uppáhalds matarbloggurum, Half baked Harvest. Þetta heppnaðist alveg ótrúlega vel og vá hvað ég mæli með að þið prófið. Þetta er smá tím
bottom of page