top of page

OSTAKÚLA MEÐ PEKANHNETUM

  • Oct 20, 2025
  • 1 min read

Gómsæt ostakúla úr Philadelphia rjómaosti með sweet chili, rauðlauk, sólþurrkuðum tómötum, pimiento papriku og ristuðum pekanhnetum. Ég hef oft útbúið ostakúlu en þessi útgáfa er alveg tryllingselega góð! Svo er hún geggjuð á ostabakkann um áramótin eða yfir hátíðarnar. Mæli með að bera fram með ljúffengu freyðivíni.

2 dl pekanhnetur 40 ml síróp 2 msk ólífuolía 1 og ½ pkn Sweet chili Philadelphia rjómaostur 1-2 msk smátt skorinn rauðlaukur 3 msk smátt skornir sólþurrkaðir tómatar ½ dl smátt skorin pimiento paprika

Aðferð

  1. Byrjið á því að blanda pekanhnetum, sírópi og ólífuolíu saman.

  2. Dreifið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 180°C. Hrærið reglulega í hnetunum og passið að þær brenni ekki.

  3. Kælið hneturnar og skerið þær smátt.

  4. Blandið saman rjómaosti, smátt skornum rauðlauk, smátt skornum sólþurrkuðum tómötum, smátt skorinni papriku og 1-2 msk af smátt skornum pekanhnetum.

  5. Mótið kúlu úr rjómaostablöndunni með höndunum.

  6. Dreifið pekanhnetunum á bökunarpappír og þekið rjómaostakúluna með þeim.

  7. Setjið kúluna á fallegan disk eða bakka og berið fram með uppáhalds kexinu ykkar.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes

Comments


bottom of page