DÁSAMLEGUR BRUSCHETTA BAKKI
- Oct 13, 2025
- 1 min read
Hvað er betra en dásamlegur bakki stútfullur af grilluðum bruchettum ásamt allskonar góðgæti og ískalt Prosecco rosé með? Bruschettur með þeyttum fetaosti, jarðaberjum og fíkjum og bruschettur með ferskum mozzarella, tómötum, basiliku og hráskinku. Fullkomin blanda og gaman að raða þessu fallega upp á bakka. Það er líka svo gaman að skála í fallegum glösum en þessi eru úr Heimahúsinu og fást hér.

1-2 bruschetta brauð (ég keypti súrdeigs) ½ dl ólífuolía 2 hvítlauksrif, rifin eða pressuð 125 g hreinn fetaostur 100 g rjómaostur (ég nota Philadelphia) 2 msk hunang 1 msk pistasíuhnetur (má sleppa eða nota annað) ½ tsk sesam fræ (má sleppa eða nota annað) 200-250 g kokteiltómatar 120-180 g ferskur mozzarella 2 msk fersk basilika 1 msk ólífuolía Salt og pipar Hráskinka og salami eftir smekk Jarðaber Fíkjur
Aðferð
Byrjið á því að hræra saman fetaost, rjómaost og hunang með töfrasprota eða í matvinnsluvél þar til blandan verður mjúk. Setjið blönduna í litla skál og dreifið smátt söxuðum pistasíuhnetur og sesamfræjum (eða notið aðrar hnetur og fræ í staðinn).
Skerið tómata, mozzarella og basilku smátt. Blandið öllu vel saman í skál og hrærið saman við ólífuolíu, salti og pipar.
Skerið jarðaberin og fíkjurnar í bita.
Blandið saman ½ dl ólífuolíu og hvítlauksrifi í skál.
Skerið baguette í sneiðar. Dreifið sneiðunum á bökunarpappír eða bakka og penslið báðar hliðar með hvítlauksolíunni.
Steikið brauðið á grillpönnu eða á grilli þar til það verður stökkt og gott.
Raðið öllu fallega á bakka og njótið vel!
Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti








Comments