top of page
Search


STÖKKAR FLÖGUR MEÐ PARMASKINKU, RJÓMAOSTI, HUNANGI & JALAPENO
Þetta er algjört sælgæti! Stökkar Maruud salt- og piparflögur toppaðar með rjómaosti, stökkri parmaskinku, jalapeno og hunangi. Fullkomin blanda af söltu, sætu og örlitlu kryddi sem slær alltaf í gegn. Berið fram beint úr ofninum með ísköldu Prosecco eða öðrum góðum drykk. 140 g Maruud flögur með salti og pipar 150 g Philadelphia rjómaostur 6 sneiðar parmaskinka eða prosciutto 2–3 msk jalapeno sneiðar (úr krukku) 2 msk hunang Aðferð Hitið ofninn í 180°C. Dreifið flögunum á b


KJÚKLINGUR MEÐ PARMASKINKU & MOZZARELLA
Ég sá þessa girnilegu uppskrift frá Donna Hay og ég varð bara að prófa að útbúa mína útgáfu og vá hvað þetta er gómsætur réttur! Kjúklingabringur með ferskum mozzarella og basilíku, vafðar inní parmaskinku og þaktar með panko- og parmesan hjúpi. Það getur bara ekki klikkað. Fullkominn matur til að gera vel við sig. Gott að bera fram með kartöflum, salati og ísköldu rósavíni. Fyrir fjóra 4 kjúklingabringur frá Rose Poultry 16 basilíku laufblöð 8 sneiðar ferskur mozzarella Pipa


VALENTÍNUSARPIZZA
Fullkomin hjartalöguð og rómantísk pizza fyrir valentínusardaginn eða konudaginn með Philadelphia rjómaosti, kokteiltómötum, basiliku, mozzarella, klettasalati, parmesan osti og stökkri parma skinku. Uppskrift að 12 tommu pizzu 4 msk Philadelphia rjómaostur með hvítlauk og kryddi 200 g kokteiltómatar 1-2 msk fersk basilika, smátt skorin 1-2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin Krydd: 1 tsk oregano, ½ tsk salt, ¼ tsk pipar 180 g litlar mozzarella kúlur 4 sneiðar parmaskinka Ólífuol


FERSKT KJÚKLINGASALAT MEÐ JARÐABERJUM & PARMESAN
Ferskt og gott kjúklingasalat með kjúklingabringum, ferskum aspas, stökkri hráskinku, jarðaberjum, avókadó, parmigiano reggiano ásamt fleiri dásemdar hráefnum í ferskri salatdressingu. Þessi samsetning lætur bragðlaukana gjörsamlega dansa. Hvítlauks grillolían frá Caj P gerir kjúklinginn svo einstaklega bragðgóðan. Ég er búin að nota þennan kryddlög ansi mikið í sumar enda passar hann með mörgu. Mæli með að bera þetta fram með volgu hvítlauksbrauði og glasi af köldu rósavíni


DÁSAMLEGUR BRUSCHETTA BAKKI
Hvað er betra en dásamlegur bakki stútfullur af grilluðum bruchettum ásamt allskonar góðgæti og ískalt Prosecco rosé með? Bruschettur með þeyttum fetaosti, jarðaberjum og fíkjum og bruschettur með ferskum mozzarella, tómötum, basiliku og hráskinku. Fullkomin blanda og gaman að raða þessu fallega upp á bakka. Það er líka svo gaman að skála í fallegum glösum en þessi eru úr Heimahúsinu og fást hér. 1-2 bruschetta brauð (ég keypti súrdeigs) ½ dl ólífuolía 2 hvítlauksrif, rifin e
bottom of page