top of page

VALENTÍNUSARPIZZA

  • Jan 2
  • 2 min read

Fullkomin hjartalöguð og rómantísk pizza fyrir valentínusardaginn eða konudaginn með Philadelphia rjómaosti, kokteiltómötum, basiliku, mozzarella, klettasalati, parmesan osti og stökkri parma skinku.

Uppskrift að 12 tommu pizzu 4 msk Philadelphia rjómaostur með hvítlauk og kryddi 200 g kokteiltómatar 1-2 msk fersk basilika, smátt skorin 1-2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin Krydd: 1 tsk oregano, ½ tsk salt, ¼ tsk pipar 180 g litlar mozzarella kúlur 4 sneiðar parmaskinka Ólífuolía Klettasalat eftir smekk Parmesan ostur eftir smekk, rifinn

Pizzadeig (2-3 pizzabotnar) – eða kaupa tilbúið deig 12 g þurrger (einn pakki) 1 1/2 dl ylvolgt vatn 1 msk hunang 2 msk ólífuolía 1 tsk salt 6-7 dl fínmalað spelt


Aðferð

  1. Fletjið út deigið og myndið hjarta með höndunum. Notið hníf til að skera hjartað til.

  2. Smyrjið deigið með rjómaostinum.

  3. Skerið kokteiltómatana í fjóra bita og blandið saman við basiliku, hvítlauk og kryddi. Dreifið þeim yfir pizzuna.

  4. Dreifið mozzarella kúlunum yfir allt saman og bakið inní ofnið í 12-15 mínútur við 220°C.

  5. Dreifið parmaskinkunni á bökunarplötu þakta bökunarpappír og penslið með smá ólífuolíu. Bakið í 6-8 mínútur eða þar til hún verður stökk.

  6. Takið pizzuna úr ofninum og dreifið klettasalati, parmaskinku og parmesan osti yfir allt saman. Njótið.

Pizzadeig

  1. Blandið saman þurrgeri, ylvolgu vatni og hunangi í skál. Leyfið að standa í 10 mínútur eða þar til blandan er byrjuð að freyða vel.

  2. Bætið við ólífuolíu, salti og helmingnum af speltinu, Hærið saman og ég mæli með að nota hrærivél í verkið.

  3. Bætið restinni af speltinu saman við og hnoðið vel saman. Enn og aftur mæli ég með að nota hrærivélina til að hnoða deigið í 5-7 mínútur en annars er líka hægt að nota hendurnar.

  4. Olíuberið rúmgóða skál, setjið deigið ofan í og leggið viskustykki yfir. Leyfið að hefast í klst eða meira.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page