top of page

LJÚFFENG PIZZA MEÐ RISARÆKJUM

  • Jan 1
  • 1 min read

Ég á nánast alltaf risarækjur í frystinum því bæði finnst mér þær rosalega góðar og þær eru svo frábært hráefni í fjölbreytta rétti. Þessi pizza er mjög bragðgóð og fljótleg! Risarækjur, rjómaostur, rifinn ostur, klettasalat, parmesan ostur og steinselja. Einnig er mjög gott að bera hana fram með kokteiltómötum. Ég hef einnig oft notað tortillur í staðinn fyrir pizzadeig ef ég vil gera réttinn ennþá fljótlegri.

Fyrir 2 Risarækjurnar 20 risarækjur, óeldaðar Ólífuolía 1-2 lítil hvítlauksrif Chili flögur Salt og pipar 1 msk fersk steinselja, smátt skorin 

Pizzadeig fyrir rúmlega 12 tommu pizzu 3-4 msk smjör 2 hvítlauksrif Rifinn mozzarella ostur Philadelphia rjómaostur með graslauk Klettasalat Parmesan ostur Kokteiltómatar

Aðferð

  1. Veltið risarækjunum upp úr ólífuolíu, hvítlauk, kryddi og ferskri steinselju.

  2. Bræðið smjörið og blandið tveimur pressuðum hvítlauksrifum saman við.

  3. Fletjið út pizzadeigið og penslið með hvítlaukssmjörinu. Dreifið rifnum mozzarella yfir og rjómaosti.

  4. Bakið pizzuna í ofni við 220°C í 10-12 mín eða þar pizzan er tilbúin.

  5. Á meðan pizzan er í ofninum þá steikið þið risarækjurnar upp úr olíu. Steikið þær í 2-3 mínútur eða þar til þær verða fulleldaðar (bleikar).

  6. Þegar pizzan er tilbúin þá dreifið þið risarækjunum yfir, klettasalati, parmesan osti, ferskri steinselju og berið fram með kokteiltómötum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page