PIZZA MEÐ KARTÖFLUM OG TRUFFLU AIOLI
- Jan 1
- 1 min read
Ein af mínum uppáhalds pizzum! Hún er með kartöflum, klettasalati og trufflusósu. Það er mjög auðvelt að útbúa hana og að auki er hún sérlega góð. Innblásturinn fékk ég frá nafnlausa pizzastaðnum á Hverfisgötu 12 en sá staður var í miklu uppáhaldi hjá mér og hans er sárt saknað.

Uppskrift af 12 tommu pizzu
200 g pizzadeig
6-8 kartöflur, meðalstórar
3 msk olívuolía
2 hvítlauksrif
3-4 msk smjör
3 skarlottulaukar
2 hvítlauksrif
Rifinn mozzarella
2 msk steinselja
Klettasalat
Truffle aioli frá Stonewall kitchen
Aðferð
Skerið kartöflurnar í þunnar sneiðar. Dreifið þeim á smjörpappírsklædda bökunarplötu.
Hrærið einu pressuðu hvítlaukrifi við olíuna og penslið kartöflurnar með blöndunni. Saltið og piprið kartöflurnar og bakið þær í 20 mínútur við 190°C.
Steikið skartlottulaukinn upp úr örlitlu smjöri. Bætið við einu pressuðu hvítlauksrifi og restinni af smjörinu.
Fletjið deigið út og penslið eða smyrjið það með smjörblöndunni.
Dreifið rifnum mozzarella og raðið kartöflunum ofan á. Dreifið steinseljunni og bakið í 12-15 mínútur við 190°C.
Toppið að lokum pizzuna með klettasalati og trufflu aioli.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments