top of page

STÖKKAR FLÖGUR MEÐ PARMASKINKU, RJÓMAOSTI, HUNANGI & JALAPENO

  • Jul 26
  • 1 min read

Þetta er algjört sælgæti! Stökkar Maruud salt- og piparflögur toppaðar með rjómaosti, stökkri parmaskinku, jalapeno og hunangi. Fullkomin blanda af söltu, sætu og örlitlu kryddi sem slær alltaf í gegn. Berið fram beint úr ofninum með ísköldu Prosecco eða öðrum góðum drykk.


140 g Maruud flögur með salti og pipar

150 g Philadelphia rjómaostur

6 sneiðar parmaskinka eða prosciutto

2–3 msk jalapeno sneiðar (úr krukku)

2 msk hunang 


Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C.

  2. Dreifið flögunum á bökunarplötu þakta bökunarpappír.

  3. Setjið litlar doppur af Philadelphia yfir allt.

  4. Rífið parmaskinkuna í litla bita og dreifið yfir.

  5. Dreifið jalapeno sneiðunum og dreypið hunangi vel yfir allt.

  6. Bakið í ofni í 5–7 mínútur, eða þar til rjómaosturinn hefur mýkst og parmaskinkan tekið smá lit. 

  7. Berið fram strax á meðan snakkið er heitt og njótið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page