EINFÖLD & BRAGÐGÓÐ ÍDÝFA
- Oct 20, 2025
- 1 min read
Hér kemur uppskrift að dásamlegri ídýfu sem er ein sú allra einfaldasta og passar svo vel með Maruud bleika snakkinu með hvítlauk, bjarnarlauk og chili. Tilvalið til að bjóða uppá á gamlárskvöld. Ídýfan inniheldur sýrðan rjóma, krydd og Tabasco Habanero sósu. Gerist ekki einfaldara!

1 dós sýrður rjómi 1 tsk saltflögur 1 tsk laukduft 1/2 tsk hvítlauksduft 1/4 tsk pipar Tabasco Habanero sósa eftir smekk Maruud með hvítlauk, bjarnarlauk og chili
Aðferð
Blandið saman sýrðum rjóma, salti, laukdufti, hvítlauksdufti og pipar.
Bætið Tabasco Habanero sósu eftir smekk og hrærið saman. Smakkið ykkur til því sósan er mjög sterk.
Berið fram með Maruud snakki og njótið


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes



Comments