HEIT OSTAÍDÝFA MEÐ JALAPENO
Gómsæt ostaídýfa sem inniheldur Philadelphia rjómaost með graslauk, sýrðan rjóma, parmigiano reggiano, jalapeno og cheddar ost! Svakalega góð og passar sérlega vel með köldum drykk og tortillaflögum á sólardögum eða sem snarl á kósýkvöldi með uppáhalds þættinum ykkar. Ég mæli með að bæta við jalapeno eftir smekk, fer eftir því hversu sterkt þið viljið hafa þetta. Svo er algjör snilld að setja ídýfuna á grillið í ferðalögum, þá er gott að nota steypujárnspönnu eða annað ílát sem má fara á grill.

200 g Philadelphia rjómaostur með graslauk 1½ dl sýrður rjómi 3 dl rifinn cheddar ostur ½ dl rifinn parmigiano reggiano 1 dl smátt skorinn jalapeno (eða minna ef þið viljið ekki sterkt)
Toppa með: 35 g smör ½ dl rifinn parmigiano reggiano ⅔ dl panko raspur Steinselja, smátt skorin
Tortillaflögur
Aðferð
Blandið saman rjómaosti, sýrðum rjóma, cheddar osti, parmigiano og jalapeno. Dreifið blöndunni í eldfast mót eða steypu járnspönnu.
Bræðið smjör í potti, bætið parmigiano og raspi saman við og hrærið vel saman.
Dreifið raspinum yfir ídýfuna og bakið í ofni við 190°C á blæstri í 20 mínútur eða þar til ídýfan er orðin gyllt og stökk. Það er einnig mjög gott að grilla ídýfuna.
Dreifið steinseljunni yfir í lokin og berið fram með tortillaflögum.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti

Comments