BRUSCHETTUR MEÐ RJÓMAOSTI & OFNBÖKUÐUM TÓMÖTUM
- Oct 20, 2025
- 1 min read
Ristaðar bruschettur með hvítlauks-og kryddjurta rjómaosti, ofnbökuðum kokteiltómötum og ferskum kryddjurtum. Nammi! Svo ótrúlega bragðgott og ljúft með köldu hvítvínsglasi. Ekta til þess að bera fram í matarboðum, sem forrétt, saumaklúbbshittingum eða sem meðlæti með góðu pasta.

1 baguette brauð, ég keypti súrdeigs Philadelphia rjómaostur með hvítlauk 1 dl ólífuolía + 1 msk ólífuolía 3 hvítlauksrif 200-250 g kokteiltómatar 2 msk ferskt oregano, smátt skorið eða 1 msk þurrkað 2 msk fersk basilika, smátt skorið Salt & pipar
Aðferð
Byrjið á því að skera baguette brauð í sneiðar. Leggið sneiðarnar á bökunarplötu þakta bökunarpappír.
Blandið saman 1 dl ólífuolíu og tveimur pressuðum hvítlauksrifjum saman í litla skál.
Penslið brauðið með hvítlauksolíunni.
Skerið tómatana í bita og blandið saman við 1 msk ólífuolíu, 1 pressað hvítlauksrif, oregano, basiliku, salti og pipar. Dreifið þeim í lítið eldfast mót.
Bakið brauðið og tómatana í ca. 10 mínútur við 190°C.
Smyrjið brauðsneiðarnar með rjómaostinum og dreifið tómötunum yfir. Gott að strá ferskum kryddjurtum yfir og njóta.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes













Comments