top of page
Search


FERSK HABANERO SALSA ÍDÝFA
Einföld og gómsæt ídýfa með rjómaosti, ferskum tómötum, habanero Tabasco, vorlauk og kóríander. Habanero Tabasco gerir ídýfuna sannarlega sterka sem ég elska en mæli með að nota hana varlega því hún er mjög sterk og það þarf ekki mikið. Best að smakka sig áfram. Upplagt sem snarl í góða veðrinu með snakki og ísköldum Corona. 1 Philadelphia rjómaostur 250 g litlir tómatar 3 vorlaukar (2/3 dl smátt skornir) 1 msk Habanero Tabasco eða magn eftir smekk 1 tsk safi úr lime 2 msk sm


GULRÓTAHUMMUS
Hummus með gulrótum er mjög bragðgóður. Gulrætur eru svo næringarríkar og passar vel að setja í hummus. Mæli með að þið prófið að smyrja á hrökkbrauð eða á tortillur. 1 krukka kjúklingabaunir, 240 g 4 gulrætur 1 msk tahini 6 msk ólífuolía Safi úr 1/2 sítrónu Salt & pipar Cumin Cayenne pipar Toppað með: Ólífuolíu Gulrót, skorin í litla bita Chili flögum Sjávarsalti Ferskum kóríander Aðferð Skerið gulræturnar í litla bita og hrærið saman við kjúklingabaunirnar og ólífuolíu.


OSTAKÚLA MEÐ PEKANHNETUM
Gómsæt ostakúla úr Philadelphia rjómaosti með sweet chili, rauðlauk, sólþurrkuðum tómötum, pimiento papriku og ristuðum pekanhnetum. Ég hef oft útbúið ostakúlu en þessi útgáfa er alveg tryllingselega góð! Svo er hún geggjuð á ostabakkann um áramótin eða yfir hátíðarnar. Mæli með að bera fram með ljúffengu freyðivíni. 2 dl pekanhnetur 40 ml síróp 2 msk ólífuolía 1 og ½ pkn Sweet chili Philadelphia rjómaostur 1-2 msk smátt skorinn rauðlaukur 3 msk smátt skornir sólþurrkaðir tóm


BRUSCHETTUR MEÐ RJÓMAOSTI & OFNBÖKUÐUM TÓMÖTUM
Ristaðar bruschettur með hvítlauks-og kryddjurta rjómaosti, ofnbökuðum kokteiltómötum og ferskum kryddjurtum. Nammi! Svo ótrúlega bragðgott og ljúft með köldu hvítvínsglasi. Ekta til þess að bera fram í matarboðum, sem forrétt, saumaklúbbshittingum eða sem meðlæti með góðu pasta. 1 baguette brauð, ég keypti súrdeigs Philadelphia rjómaostur með hvítlauk 1 dl ólífuolía + 1 msk ólífuolía 3 hvítlauksrif 200-250 g kokteiltómatar 2 msk ferskt oregano, smátt skorið eða 1 msk þurrkað


PICNIC TORTILLARÚLLUR
Hér kemur ljúffeng Picnic hugmynd sem ég mæli með að prófa í lautarferðir og ferðalög. Ljúffengar tortillarúllur fylltar með kalkúnaskinku, salami, tómötum, salatblöðum, pestói, rjómaosti og cheddar osti og svo fullkomna ég máltíðina með súkkulaðihúðuðum berjum og ísköldu Prosecco. Fyrir einn 1 original tortilla frá Mission (fæst t.d. í Krónunni) 1-2 msk Philadelphia rjómaostur 2 tsk pestó með tómötum og ricotta osti frá Filippo Berio 2-3 msk rifinn cheddar ostur 4 sneiðar þu


ÓMÓTSTÆÐILEGAR AVÓKADÓ VORRÚLLUR
Það eru örugglega fleiri en ég sem elska „avocado eggroll“ á Cheesecake factory í Bandaríkjunum. En sá réttur er fyrirmyndin af þessari uppskrift. Vorrúllur fylltar með avókadó, tómötum, kóíander og blaðlauki bornar fram með gómsætri . Það er svo lítið mál að gera þetta og ég mæli með að þið prófið. Þetta er ótrúlega gott! Uppskrift gerir 6 vorrúllur 2 stór avókado (eða 3 lítil avókadó) 1-2 tómatar 2 msk kóríander 3 msk blaðlaukur Safi úr ½ lime Chili flögur Salt og pipar Egg
bottom of page