ÓMÓTSTÆÐILEGAR AVÓKADÓ VORRÚLLUR
- Oct 14, 2025
- 2 min read
Það eru örugglega fleiri en ég sem elska „avocado eggroll“ á Cheesecake factory í Bandaríkjunum. En sá réttur er fyrirmyndin af þessari uppskrift. Vorrúllur fylltar með avókadó, tómötum, kóíander og blaðlauki bornar fram með gómsætri . Það er svo lítið mál að gera þetta og ég mæli með að þið prófið. Þetta er ótrúlega gott!

Uppskrift gerir 6 vorrúllur 2 stór avókado (eða 3 lítil avókadó) 1-2 tómatar 2 msk kóríander 3 msk blaðlaukur Safi úr ½ lime Chili flögur Salt og pipar Egg 2 dl olía (ég notaði steikingarolíuna frá Olifa) Fílódeig (Fæst tilbúið og frosið í t.d. Hagkaup)
Kóríander sósa 3 msk sýrður rjómi 1 msk majónes 3 msk kóríander Safi úr ½ lime ½ tsk limebörkur Salt og pipar Smá hvítlauksduft
Aðferð
Stappið avókadóið gróflega með kartöflustappara eða notið annað áhald til að stappa.
Skerið tómatana, kóríander og blaðlauk smátt og hrærið saman við avókadóið. Kreistið safa úr lime og kryddið með salti, pipar og chili flögum.
Skerið fílódeigið í 6 ferninga. Ein plata af deiginu gerir 2 skammta.
Dreifið avókadóstöppunni jafnt í miðjuna á öllum skömmtunum.
Pískið egg og penslið hornin á deiginu.
Pakkið deiginu saman eins og umslagi og myndið úr því 6 rúllur. Farið varlega af því að deigið er viðkvæmt. Ef það kemur gat á deigið þá er gott að taka bút af deiginu, bleyta það með egginu og setja yfir gatið.
Hitið olíuna í háum potti.
Steikið vorrúllurnar upp úr olíunni þangað til að þær verða gylltar og stökkar. Passið að olían sé orðin vel heit. Mér finnst gott að dýfa viðarskapti á skeið í olíuna og þegar hún er orðin heit þá bullsýður viðurinn.
Skerið vorrúllurnar í tvennt, berið fram með kóríander sósunni og njótið.
Kóríander sósa
Saxið kóranderinn smátt og blandið öllum hráefnunum saman í skál. Berið fram með vorrúllunum.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti










Comments