FYLLT AVÓKADÓ MEÐ EGGJUM
- Sep 15, 2025
- 1 min read
Þessi réttur er tilvalinn í helgarbrönsinn, einnig gott sem morgunmatur eða millimál. Einfalt og gott avókadó fyllt með eggjum, bakað í ofni og borið fram með parmesan osti, sítrónusafa, steinselju og radísuspírum. Ég er með svipaða uppskrift í Avocado bókinni nema þar nota ég rifinn mozzarella í stað parmesan osts.

3 þroskuð avókadó
6 lítil egg
Salt og pipar
Safi úr sítrónu
Rifinn parmesan ostur
Fersk steinselja, söxuð
Radísuspírur
Aðferð
Skerið avókadó í tvennt og skafið úr því til þess að gefa egginu pláss.
Brjótið eggið í skál og hellið ofan í avókadóið. Ef það er lítið og eggin stór þá passar ekki öll eggjahvítan ofan í það. Þá er gott að geyma restina og nota í eitthvað annað.
Saltið og piprið fyllta avókadóið og bakið í u.þ.b. 10-15 mínútur við 190°C eða þar til eggið er tilbúið.
Kreistið safa úr sítrónu yfir og stráið parmesan osti, steinselju og radísuspírum yfir allt saman.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments