top of page

GULRÓTAHUMMUS

  • Oct 20, 2025
  • 1 min read

Hummus með gulrótum er mjög bragðgóður. Gul­rætur eru svo nær­ing­ar­ríkar og passar vel að setja í hummus. Mæli með að þið prófið að smyrja á hrökkbrauð eða á tortillur.

1 krukka kjúklingabaunir, 240 g 4 gulrætur 1 msk tahini 6 msk ólífuolía Safi úr 1/2 sítrónu Salt & pipar Cumin Cayenne pipar

Toppað með: Ólífuolíu Gulrót, skorin í litla bita Chili flögum Sjávarsalti Ferskum kóríander

Aðferð

  1. Skerið gulræturnar í litla bita og hrærið saman við kjúklingabaunirnar og ólífuolíu.

  2. Bakið í 20 mín við 180°C og takið nokkra gulrótabita frá til að toppa hummusinn með.

  3. Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél (ég nota matvinnsluvélina sem fylgir töfrasprotanum mínum).

  4. Toppið svo með ólífuolíu, saxaðri gulrót, söxuðum kóríander, chili flögum og salti.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page