top of page

PICNIC TORTILLARÚLLUR

  • Oct 20, 2025
  • 1 min read

Hér kemur ljúffeng Picnic hugmynd sem ég mæli með að prófa í lautarferðir og ferðalög. Ljúffengar tortillarúllur fylltar með kalkúnaskinku, salami, tómötum, salatblöðum, pestói, rjómaosti og cheddar osti og svo fullkomna ég máltíðina með súkkulaðihúðuðum berjum og ísköldu Prosecco.



Fyrir einn 1 original tortilla frá Mission (fæst t.d. í Krónunni) 1-2 msk Philadelphia rjómaostur 2 tsk pestó með tómötum og ricotta osti frá Filippo Berio 2-3 msk rifinn cheddar ostur 4 sneiðar þunnskorin kalkúnaskinka 3 sneiðar salami Salatblöð 3 kirsuberjatómatar, smátt skornir

Aðferð

  1. Smyrjið tortilluna með rjómaosti. Dreifið pestóinu þvert í miðjuna á tortillunni.

  2. Stráið cheddar ostinum yfir allt saman.

  3. Dreifið kalkúnaskinkunni, salami, salatblöðum og tómötunum þvert í miðjuna.

  4. Rúllið tortillunni upp og skerið í litla bita. 

Súkkulaðihúðuð ber Milka mjólkursúkkulaði Hvítt súkkulaði Jarðaber

Aðferð

  1. Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og dreifið yfir berin. Kælið þar til súkkulaðið hefur storknað.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes

Comments


bottom of page