top of page
Search


ÍSTERTA MEÐ JARÐARBERJUM & DAIM
Þessi klassíska og ljúffenga Daim ísterta sem mamma gerir svo oft en í aðeins öðruvísi búning. Ég einfaldaði aðeins með því að kaupa tilbúinn ís. Marengsbotn með möndlum sem minnir á sörur, rjómaís, stökkt Daim og fersk jarðarber. Fullkomin terta til að gera fyrirfram og geyma í frysti. Botn 3 eggjahvítur 150 g sykur 150 g saxaðar möndlur Fylling 1 stórt box vanillu rjómaís (700 g) 3–4 Daim plötur 150 g Driscoll’s jarðarber Til skrauts Jarðarber & saxað Daim Aðferð Hitið ofni


FRENCH TOAST MUFFINS
Það er eitthvað sérstaklega notalegt við að baka French Toast muffins. Ilmurinn af kanil og vanillu er aðeins of yndisleg! Þessi uppskrift er fullkomin í helgarbrönsinn, í kaffiboðið eða bara þegar þið viljið dekra við ykkur. Með ferskum Driscoll’s jarðarberjum og hindberjum fær rétturinn bæði ferskleika og lit, og ef þið viljið gera þetta enn betur við ykkur þá passar ískalt prosecco sérlega vel með. 260 g súrdeigsbrauð (eða fransbrauð), skorið í litla bita 4 stk egg ½ dl mj


JARÐARBERJA- & BASIL MARGARITA
Ferskur, litríkur og ómótstæðilega góður drykkur. Blanda af sætum jarðarberjum, basilíku og klassísku margaritu bragði. Ótrúlega bragðgóður og sumarlegur drykkur. Fyrir einn kokteil 60 ml tequila 30 ml safi úr lime 30 ml Cointreau 1 tsk hunang 4–5 Driscoll’s jarðarber, skorin í tvennt 4 fersk basilíku lauf Klakar Fyrir glasbrúnina: Gróft salt Lime til að bleyta glasið Aðferð: Byrjið á að væta glasbrúnina með lime báti og dýfið í salt ef þið viljið saltkant. Setjið jarðarber


JÓGÚRTBITAR MEÐ HINDBERJUM & JARÐARBERJUM
Fullkomið millimál eða sætt nammi sem geymist í frysti! Það er eitthvað við samsetningu af grískri jógúrt, ferskum berjum og smá súkkulaði sem gerir mann alveg háðan! Þessir jógúrtbitar eru ekki bara ótrúlega girnilegir heldur líka næringarríkir. Fullkomið til að grípa í þegar sykurpúkinn bankar upp á! 2 dl grísk jógúrt 125 g Driscoll’s hindber (stappa 8 stk, rest skorin í sneiðar) 8 Driscoll’s jarðraber, smátt skorin 1-2 msk hunang (eftir smekk) 1 msk chia fræ (eða 2 msk chi


RÓSAVÍNS SANGRÍA BERJUM & FERSKJUM
Ljúffeng og létt sangría með rósavíni, Cointreau, jarðarberjum, hindberjum, appelsínu, hunangi og smá sódavatni. Fullkomin til að njóta í góðum félagsskap á sumrin eða bara þegar ykkur langar í eitthvað ljúffengt og fagurt í glasi. 1 flaska Adobe Rosé Reserva (750 ml) Safi úr 1 appelsínu (ca. ½ dl) 1–2 ferskjur, skornar í þunnar sneiðar 2 dl Driscoll’s jarðarber, skorin í sneiðar 1-2 dl Driscoll’s hindber 4 msk Cointreau (má minnka fyrir mildari útgáfu) 2 msk hunang (smakkið


FRENCH TOAST MEÐ FERSKUM BERJUM
Hér kemur uppskrift að french toast með ferskum berjum, hlynsírópi og rjómaostablöndu. Geggjuð blanda og kjörið til að útbúa fyrir páskabrönsinn. Ég gerði þessa gómsætu uppskrift í samstarfi við Innnes. Ég nota fersk ber frá Driscoll’s en þau eru komin í nýjar og fallegar pappaöskjur sem innihalda minna plast og eru 100% endurvinnanlegar. Og ekki skemmir hvað berin eru virkilega bragðgóð. Rjómaostablandan passar mjög vel með en hún inniheldur Philadelphia rjómaost, hlynsíróp


OSTAKAKA MEÐ JARÐARBERJUM
Þessi ostakaka er fersk og á vel við sem eftirréttur eftir góða máltíð. Ég nota jarðarber frá Driscoll’s í uppskrifina en þau eru einstaklega bragðgóð og falleg. Hvítt súkkulaði gerir svo ostakökufyllinguna einstaklega ljúffenga. Það er algjör snilld að útbúa ostakökuna daginn áður, geyma í frysti og dreifa jarðaberjunum yfir áður en þið berið hana fram. 1 pkn Lu Digestive kex 120 g smjör 2 pkn Philadelphia rjómaostur 3,5 dl rjómi 2 tsk vanilludropar 100g hvítt súkkulaði 2 ms


JARÐARBERJARÓSIR
Jarðarberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn eða hvenær sem er. Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem er mjög ljúffengur 🌹 Eina sem þú þarft er: Grillspjót eða kokteilpinnar Borði Driscolls jarðarber Toblerone Aðferð Skerið í jarðarberin þannig að þau mynda rósir (sjá aðferð hér: www.instagram.com/reel/C3TYaBmoAcJ/ ). Skreytið pinnana með slaufum og stingið þeim í jarðarberin. Bræðið Toblerone yfir vatnsbaði og be


JARÐARBERJABAKA MEÐ KARAMELLUFYLLTU SÚKKULAÐI
Dásamleg jarðaberjabaka sem er alltaf jafn góð, einföld og ullkomin eftirréttur! Milka með toffee creme fer með kökuna á annað level og setur punktinn yfir i-ið! Eina sem þarf í bökuna eru fersk jarðaber, hveiti, sykur, smjör og Milka súkkulaði. Mér finnst best að bera hana fram með ís (rjómi er líka góður). Fyrir 3-4 300 g jarðarber 100 g smjör við stofuhita 100 g sykur 100 g hveiti Milka með toffee creme Aðferð Skerið jarðaberin í tvennt, leggið þau í eldfast mót. Blandið s


EFTIRRÉTTIR Í GLÖSUM
Tvær gómsætar hugmyndir að eftirréttum í glösum eða krukkum. Ostakaka með möndlusmjöri, haframulningi og ferskum berjum sem er aðeins í hollari kantinum og marengs í glösum með dumle, rjóma, jarðaberjum, ástríðuávexti og fræjum úr granatepli. Mæli með að setja minna í krukkurnar/glösin ef að þið viljið minni skammta. OSTAKAKA Í KRUKKU MEÐ HAFRAMULNINGI, KÓKOS- OG MÖNDLUSMJÖRI Fyrir 4 1 dós Philadelphia rjómaostur 2 dl rjómi 4 msk kókos og möndlusmjör með döðlum frá Rapunzel S


JARÐARBERJABOLLUR
Einfaldar og bragðgóðar vatnsdeigsbollur fylltar með jarðarberjarjóma og toppaðar með hvítu súkkulaði. Það er svo skemmtilegt að útbúa bollurnar sjálfur og bjóða í bolludagskaffi. En ef þið hafið ekki tíma til að baka bollurnar þá finnst mér líka sniðugt að kaupa þær tilbúnar út í búð og fylla þær sjálfur. Ég hvet ykkur til að prófa þetta. 200-250 g hvítt súkkulaði 500 ml rjómi 500 g jarðarber frá Driscolls (eitt stórt box) 3 msk flórsykur Aðferð Smátt skerið 200 g af jarðarb


JARÐARBERJA GIN & TÓNIK
Jarðarberja gin og tónik er ljúffengur og ferskur drykkur, jarðarberin gefa svo gott, sætt og ferskt bragð í drykkinn. Sumarlegur drykkur sem ég mæli með að þið prófið. 1 drykkur 2-3 fersk jarðarber 5 cl Martin Miller’s gin 1 cl sykursíróp 2 dl tónik Klakar Lime sneið Aðferð Byrjið á því að merja jarðarberin og blandið þeim saman við sykursíróp. Hellið jarðarberjunum í gegnum sigti í hátt glas. Bætið við gini, tónik og hrærið varlega saman. Bætið klökum útí og lime sneið. Njó


BLEIKUR PARTÝ DRYKKUR
Við héldum við skemmtilegt partý í vinnunni og buðum uppá ljúffengan freyðivíns- og gin jarðarberjadrykk með candy floss ásamt dásamlegum köku-og jarðarberja bakka. Drykkurinn var svo góður og einfaldur! Ég útbjó jarðarberja-og ginblönduna daginn áður, setti í flösku og geymdi inn í ísskáp. Svo helti ég blöndunni í glös, bætti freyðivíni útí og skreytti með candy floss. Ef að þið eruð með veislu eða partý á næstunni þá er þessi kokteill tilvalinn! 1 drykkur 3 cl Roku gin 2 cl


JARÐARBERJA BELLINI
Bellini er dásamlegur ítalskur freyðivínsdrykkur sem smellpassar í brönsinn eða bara sem ljúfur helgarkokteill. Venjulega inniheldur kokteillinn ferskjumauk en hér er hann með jarðarberjamauki. Jarðarber og freyðivín, er til eitthvað betra? Gefur mímósu ekkert eftir og mér finnst þessi drykkur eiginlega betri. Mæli með að þið prófið. Einn drykkur 1-2 dl Lamberti Prosecco 3 jarðarber 3 cl sykursíróp Aðferð Byrjið á því að blanda saman jarðaberjum og sykursírópi með töfrasprota


JARÐARBERJABOLLA FYRIR BOLLUDAGINN
Tilvalið að skála í jarðarberjabollu fyrir bolludaginn. Þessi drykkur er afar bragðgóður og ferskur með fullt af ferskum berjum. Ég bar drykkinn fram í fallegri könnu en einnig er sniðugt að setja hann í stóra skál með ausu. Frábært partý drykkur sem ég mæli mikið með. 1 dl Cointreau 1,8 dl vodka 2 dl sykursíróp 1 dl safi úr sítrónu 5 dl Pizzolato Pinot Grigio, freyðivín 2 dl sódavatn 200 g jarðarber 50 g hindber 50 g brómber Klakar Jarðarberja sykursíróp 4 dl smátt skorin ja


FERSKT KJÚKLINGASALAT MEÐ JARÐABERJUM & PARMESAN
Ferskt og gott kjúklingasalat með kjúklingabringum, ferskum aspas, stökkri hráskinku, jarðaberjum, avókadó, parmigiano reggiano ásamt fleiri dásemdar hráefnum í ferskri salatdressingu. Þessi samsetning lætur bragðlaukana gjörsamlega dansa. Hvítlauks grillolían frá Caj P gerir kjúklinginn svo einstaklega bragðgóðan. Ég er búin að nota þennan kryddlög ansi mikið í sumar enda passar hann með mörgu. Mæli með að bera þetta fram með volgu hvítlauksbrauði og glasi af köldu rósavíni


JARÐARBERJA MARGARITA
Frosin jarðarberja margarita er einstaklega ljúffengur drykkur sem auðvelt er að útbúa. Ég var nánast búin að gleyma þessum kokteil en í gegnum tíðina hef ég pantað mér hann oft og mörgum sinnum erlendis og þá sérstaklega á mexíkóskum veitingastöðum. Ég ákvað að prófa að gera hann sjálf og namm hvað hann heppnaðist vel. Það eina sem þarf að gera er að setja allt hráefnið í blender og hræra. Ég mæli með að þið prófið þennan! 4 cl Tequila Sauza Silver 2 cl cointreau 2 cl safi ú


PICNIC TORTILLARÚLLUR
Hér kemur ljúffeng Picnic hugmynd sem ég mæli með að prófa í lautarferðir og ferðalög. Ljúffengar tortillarúllur fylltar með kalkúnaskinku, salami, tómötum, salatblöðum, pestói, rjómaosti og cheddar osti og svo fullkomna ég máltíðina með súkkulaðihúðuðum berjum og ísköldu Prosecco. Fyrir einn 1 original tortilla frá Mission (fæst t.d. í Krónunni) 1-2 msk Philadelphia rjómaostur 2 tsk pestó með tómötum og ricotta osti frá Filippo Berio 2-3 msk rifinn cheddar ostur 4 sneiðar þu


DÁSAMLEGUR BRUSCHETTA BAKKI
Hvað er betra en dásamlegur bakki stútfullur af grilluðum bruchettum ásamt allskonar góðgæti og ískalt Prosecco rosé með? Bruschettur með þeyttum fetaosti, jarðaberjum og fíkjum og bruschettur með ferskum mozzarella, tómötum, basiliku og hráskinku. Fullkomin blanda og gaman að raða þessu fallega upp á bakka. Það er líka svo gaman að skála í fallegum glösum en þessi eru úr Heimahúsinu og fást hér. 1-2 bruschetta brauð (ég keypti súrdeigs) ½ dl ólífuolía 2 hvítlauksrif, rifin e


JARÐARBERJA CHIA GRAUTUR
Fullkominn og einfaldur morgunmatur sem er þægilegur að útbúa daginn áður og hafa tilbúinn um morguninn.
bottom of page