RÓSAVÍNS SANGRÍA BERJUM & FERSKJUM
- Feb 6
- 1 min read
Ljúffeng og létt sangría með rósavíni, Cointreau, jarðarberjum, hindberjum, appelsínu, hunangi og smá sódavatni. Fullkomin til að njóta í góðum félagsskap á sumrin eða bara þegar ykkur langar í eitthvað ljúffengt og fagurt í glasi.

1 flaska Adobe Rosé Reserva (750 ml)
Safi úr 1 appelsínu (ca. ½ dl)
1–2 ferskjur, skornar í þunnar sneiðar
2 dl Driscoll’s jarðarber, skorin í sneiðar
1-2 dl Driscoll’s hindber
4 msk Cointreau (má minnka fyrir mildari útgáfu)
2 msk hunang (smakkið til – fer eftir hversu þurrt vínið er)
2–3 dl sódavatn (bætið við rétt áður en drykkurinn er borinn fram)
Klakar
Aðferð:
Setjið öll berin og ferskjnar í stóra könnu.
Hellið appelsínusafa, Cointreau og hunangi yfir og hrærið létt saman.
Bætið við rósavíninu og setjið í kæli í 2–3 klst (eða lengur).
Rétt áður en sangrían er borin fram, bætið við sódavatni og klökum.
Hrærið varlega og berið fram í fallegum glösum með ávöxtum og kannski myntublaði – ef þið eruð í stuði.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes







Comments