top of page
Search


SPICY JARÐARBERJA- & BASIL SPRITZ
Þessi áfengislausi kokteill er ferskur, örlítið sætur með mildum hita frá chilihunangi og fullkominn með sumarlegu antipasto rétti eins og t.d. þessum. Crodo Lemon Soda gefur honum léttan sítruskeim og fallega freyðingu. Hráefni (2 glös) 4–6 jarðarber 12–16 fersk basilikulauf 30 ml ferskur sítrónusafi 60 ml kalt vatn 1½ msk chilihunang frá Olifa Klakar Crodo Lemon Soda eftir smekk Aðferð Setjið jarðarber, basiliku, sítrónusafa, vatn og chilihunang í kokteilahristara. Stappið


FERSKJU SPRITZ
Léttur, ferskur og sumarlegur kokteill með sætum ferskjum, freyðandi Kylie Minogue Prosecco og örlitlu beisku tvisti frá Galliano Amaro Bitter. Fullkominn með góðum smáréttum eða á hlýjum sumardegi. Fyrir einn drykk 2–3 ferskjusneiðar 60 ml Kylie Minogue Prosecco 30 ml Galliano Amaro Bitter 30–60 ml Sprite 1 appelsínusneið Klakar Aðferð Fyllið stórt vínglas af klaka. Bætið ferskjusneiðunum út í og þrýstið þeim létt með skeið til að losa aðeins um safann. Hellið Galliano Amaro


SPICY PASSION MARGARITA
Margarita er svo sumarlegur kokteill og hér er drykkurinn extra ljúffengur með jalapeno og ástaraldin. Svo ljúffeng blanda sem þið verðið að prófa! Elska svona "spicy" kokteila. 1 drykkur 50 ml Los Tres Toños Blanco tequila 30 ml Cointreau 1 ástaraldin (passion fruit) 25 ml ferskur límónusafi 10 ml sykursíróp 2–4 jalapeno sneiðar Tajín á glasbrúnina Aðferð Nuddið límónubát á glasbrúnina og veltið henni upp úr Tajín. Skafið kvoðuna úr ástaraldininu og setjið í hristarann ásamt


JARÐARBERJA- & BASIL MARGARITA
Ferskur, litríkur og ómótstæðilega góður drykkur. Blanda af sætum jarðarberjum, basilíku og klassísku margaritu bragði. Ótrúlega bragðgóður og sumarlegur drykkur. Fyrir einn kokteil 60 ml tequila 30 ml safi úr lime 30 ml Cointreau 1 tsk hunang 4–5 Driscoll’s jarðarber, skorin í tvennt 4 fersk basilíku lauf Klakar Fyrir glasbrúnina: Gróft salt Lime til að bleyta glasið Aðferð: Byrjið á að væta glasbrúnina með lime báti og dýfið í salt ef þið viljið saltkant. Setjið jarðarber


RÓSAVÍNS SANGRÍA BERJUM & FERSKJUM
Ljúffeng og létt sangría með rósavíni, Cointreau, jarðarberjum, hindberjum, appelsínu, hunangi og smá sódavatni. Fullkomin til að njóta í góðum félagsskap á sumrin eða bara þegar ykkur langar í eitthvað ljúffengt og fagurt í glasi. 1 flaska Adobe Rosé Reserva (750 ml) Safi úr 1 appelsínu (ca. ½ dl) 1–2 ferskjur, skornar í þunnar sneiðar 2 dl Driscoll’s jarðarber, skorin í sneiðar 1-2 dl Driscoll’s hindber 4 msk Cointreau (má minnka fyrir mildari útgáfu) 2 msk hunang (smakkið


SANGRÍA
Sangría er svo frískandi og gómsætur drykkur sem er tilvalinn til að bera fram í góðra vina hópi. Þótt sumarið sé búið þá má svo sannarlega njóta sangríu og skella í spænska veislu sem jafnvel inniheldur ljúffenga tapas rétti. Mjög einfalt að útbúa sangríu, eina sem þú þarft er stór kanna, hráefnið og sleif. 1 epli 1 lime 1/2 sítróna 1/2 appelsína 2 litlar nektarínur 60 ml sykursíróp 60-70 ml Cointreau 1 flaska Adobe Reserva Merlot rauðvíni 2 dl límónaði, Sprite eða 7 Up Klak


COINTREAU SPRITZ
Kokteill sem er sko sannarlega sumarlegur og ljúfur. Frískandi og bragðgóður með appelsínukeim en hann innheldur Cointreau appelsínulíkjör, prosecco, sódavatn, appelsínu og fullt af klökum. Mjög einfaldur og þarf ekkert að hrista, bara að hella í glas og njóta. Ég vona að þið njótið með drykknum og skál til ykkar allra. 1 kokteill 15 ml Cointreau 1 dl Prosecco 50 ml sódavatn Appelsínusneið Nóg af klökum Aðferð: Fyllið glas með klökum og hellið Cointreau út í. Hellið svo freyð


JARÐARBERJA GIN & TÓNIK
Jarðarberja gin og tónik er ljúffengur og ferskur drykkur, jarðarberin gefa svo gott, sætt og ferskt bragð í drykkinn. Sumarlegur drykkur sem ég mæli með að þið prófið. 1 drykkur 2-3 fersk jarðarber 5 cl Martin Miller’s gin 1 cl sykursíróp 2 dl tónik Klakar Lime sneið Aðferð Byrjið á því að merja jarðarberin og blandið þeim saman við sykursíróp. Hellið jarðarberjunum í gegnum sigti í hátt glas. Bætið við gini, tónik og hrærið varlega saman. Bætið klökum útí og lime sneið. Njó


ROKU ROSÉ
Bragðgóður kokteill með gini, prosecco rosé, ylliblómasírópi (e. elderflower syrup), engifer og lime. Mér finnst afskaplega gott að setja prosecco í kokteila og hvað þá rosé – en það gerir kokteilinn einstaklega ljúffengan. Engifer og ylliblómasíróp passa líka mjög vel í drykkinn og setja punktinn yfir i-ið. Ég er viss um að það er líka gott að setja venjulegt sykursíróp ef að þið eigið ekki ylliblómasíróp. Mæli mikið með að skála í þessum um helgina ;) 1 kokteill 3 cl Roku g


JACK & ROSE
Dásamlega ljúffengur og ferskur kokteill. Það þarf alls ekki að vera flókið til að vera gott en hann inniheldur aðeins þrjú hráefni. Cointreau, greipsafa, rose lemonade ásamt fullt af klökum. Ég smakkaði þennan kokteil í vínsmökkun fyrir nokkru síðan og ég varð að leika hann eftir. Þið verðið að prófa að skella í þennan um helgina ef að þið eruð í stuði. Fyrir einn 4 cl Cointreau 3 cl safi úr fersku greip 1,5 dl rose lemonade Klakar Greip sneið Aðferð Kreistið safa úr fersku


APPELSÍNU FLOAT
Gómsætur eftirréttar kokteill með Cointreau, appelsínugosi og vanilluís. Vá vá vá hvað hann er ljúffengur! Vanilluísnn verður flöffý og freiðandi og er svo góður með appelsínubragðinu. Kokteillinn rennur ljúflega niður – algjört nammi. Mæli með þessum í sólinni eða nota hann sem einfaldan eftirrétt. Fyrir einn 5 cl Cointreau 2 dl appelsínugos (t.d. Fanta eða Appelsín) 2-3 kúlur vanilluís Aðferð Hellið appelsínugosi og Cointreau í glas og hrærið varlega saman. Setjið 2-3 kúlur


HINDBERJA MOJITO
Þegar ég hugsa um sumarlegan kokteil þá kemur mojito strax upp í hugann þótt að hann passar allan ársins hring! Hér kemur uppskrift að hindberja mojito sem afar bragðgóður. Hindberin gera drykkinn svo ferskan og bragðgóðan. Mæli með að þið prófið! Fyrir einn 6-8 hindber 10-12 fersk myntu laufblöð 6 cl Brugal romm 2 cl safi úr lime 3 cl sykursíróp Klakar 1-2 dl sódavatn Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn Aðferð Setjið hindber og myntu laufblöð í hátt glas og merjið. Hellið ro
bottom of page