APPELSÍNU FLOAT
- Jan 1
- 1 min read
Gómsætur eftirréttar kokteill með Cointreau, appelsínugosi og vanilluís. Vá vá vá hvað hann er ljúffengur! Vanilluísnn verður flöffý og freiðandi og er svo góður með appelsínubragðinu. Kokteillinn rennur ljúflega niður – algjört nammi. Mæli með þessum í sólinni eða nota hann sem einfaldan eftirrétt.

Fyrir einn 5 cl Cointreau 2 dl appelsínugos (t.d. Fanta eða Appelsín) 2-3 kúlur vanilluís
Aðferð
Hellið appelsínugosi og Cointreau í glas og hrærið varlega saman.
Setjið 2-3 kúlur af vanilluís ofan á. Passið að hafa glasið rúmgott því vanilluísinn freyðir.
Drekkið með röri og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti





Comments