top of page

COINTREAU SPRITZ

  • Jan 1
  • 1 min read

Kokteill sem er sko sannarlega sumarlegur og ljúfur. Frískandi og bragðgóður með appelsínukeim en hann innheldur Cointreau appelsínulíkjör, prosecco, sódavatn, appelsínu og fullt af klökum. Mjög einfaldur og þarf ekkert að hrista, bara að hella í glas og njóta. Ég vona að þið njótið með drykknum og skál til ykkar allra.

1 kokteill

15 ml Cointreau 1 dl Prosecco 50 ml sódavatn Appelsínusneið Nóg af klökum

Aðferð:

  1. Fyllið glas með klökum og hellið Cointreau út í.

  2. Hellið svo freyðivíni og sódavatni saman við.

  3. Skerið sneið af appelsínu og bætið ofan í (mega vera tvær appelsínusneiðar).



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page