SANGRÍA
- Jan 1
- 1 min read
Sangría er svo frískandi og gómsætur drykkur sem er tilvalinn til að bera fram í góðra vina hópi. Þótt sumarið sé búið þá má svo sannarlega njóta sangríu og skella í spænska veislu sem jafnvel inniheldur ljúffenga tapas rétti. Mjög einfalt að útbúa sangríu, eina sem þú þarft er stór kanna, hráefnið og sleif.

1 epli 1 lime 1/2 sítróna 1/2 appelsína 2 litlar nektarínur 60 ml sykursíróp 60-70 ml Cointreau 1 flaska Adobe Reserva Merlot rauðvíni 2 dl límónaði, Sprite eða 7 Up Klakar
Aðferð
Skerið alla ávextina í bita/sneiðar og setjið í stóra könnu.
Hellið sykursírópi, Cointreau og rauðvíni í könnuna og hrærið vel saman með sleif.
Því næst hellið límónaði út í og kælið í 30-60 mínútur eða jafnvel lengur.
Bætið klökum saman við og njótið.
Sykursíróp
Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti









Comments