top of page

JARÐARBERJABOLLA FYRIR BOLLUDAGINN

  • Jan 1
  • 1 min read

Tilvalið að skála í jarðarberjabollu fyrir bolludaginn. Þessi drykkur er afar bragðgóður og ferskur með fullt af ferskum berjum. Ég bar drykkinn fram í fallegri könnu en einnig er sniðugt að setja hann í stóra skál með ausu. Frábært partý drykkur sem ég mæli mikið með.

1 dl Cointreau 1,8 dl vodka 2 dl sykursíróp 1 dl safi úr sítrónu 5 dl Pizzolato Pinot Grigio, freyðivín 2 dl sódavatn 200 g jarðarber 50 g hindber 50 g brómber Klakar

Jarðarberja sykursíróp 4 dl smátt skorin jarðarber 2 dl sykur 2 dl vatn

Aðferð

  1. Byrjið á því að útbúa sykursírópið. Gott að gera það með daginn áður. Blandið saman jarðarberjum, sykri og vatni í pott. Hitið þar til suðan kemur upp og lækkið svo í hitanum. Látið malla í um 20 mínútur.

  2. Sigtið jarðaberin frá sírópinu og hellið í flösku eða krukku. Geymið í ísskáp.

  3. Hellið Cointreau, vodka, sykursírópi og sítrónusafa í stóra könnu. Hrærið aðeins í blöndunni.

  4. Bætið jarðarberjum, hindberjum og brómberjum saman við. Gott að leyfa blöndunni að standa í klst eða lengur.

  5. Hellið klökum, freyðivíni og sódavatni saman við. Hærið varlega í blöndunni og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page