JARÐARBERJA GIN & TÓNIK
- Jan 1
- 1 min read
Jarðarberja gin og tónik er ljúffengur og ferskur drykkur, jarðarberin gefa svo gott, sætt og ferskt bragð í drykkinn. Sumarlegur drykkur sem ég mæli með að þið prófið.

1 drykkur 2-3 fersk jarðarber 5 cl Martin Miller’s gin 1 cl sykursíróp 2 dl tónik Klakar Lime sneið
Aðferð
Byrjið á því að merja jarðarberin og blandið þeim saman við sykursíróp.
Hellið jarðarberjunum í gegnum sigti í hátt glas.
Bætið við gini, tónik og hrærið varlega saman.
Bætið klökum útí og lime sneið. Njótið.
Sykursíróp
Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti







Comments