top of page

HINDBERJA MOJITO

  • Jan 1
  • 1 min read

Þegar ég hugsa um sumarlegan kokteil þá kemur mojito strax upp í hugann þótt að hann passar allan ársins hring! Hér kemur uppskrift að hindberja mojito sem afar bragðgóður. Hindberin gera drykkinn svo ferskan og bragðgóðan. Mæli með að þið prófið!

Fyrir einn 6-8 hindber 10-12 fersk myntu laufblöð 6 cl Brugal romm 2 cl safi úr lime 3 cl sykursíróp Klakar 1-2 dl sódavatn Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn

Aðferð

  1. Setjið hindber og myntu laufblöð í hátt glas og merjið.

  2. Hellið rommi, lime safa og sykursírópi út í.

  3. Fyllið glasið af muldum klökum og hellið sódavatni útí. Hrærið öllu saman og njótið.


Sykursíróp

  1. Blandið saman vatn og sykur i í pott. 

  2. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

  3. Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page