FERSKJU SPRITZ
- Aug 1
- 1 min read
Léttur, ferskur og sumarlegur kokteill með sætum ferskjum, freyðandi Kylie Minogue Prosecco og örlitlu beisku tvisti frá Galliano Amaro Bitter. Fullkominn með góðum smáréttum eða á hlýjum sumardegi.

Fyrir einn drykk 2–3 ferskjusneiðar
60 ml Kylie Minogue Prosecco
30 ml Galliano Amaro Bitter
30–60 ml Sprite
1 appelsínusneið
Klakar
Aðferð
Fyllið stórt vínglas af klaka.
Bætið ferskjusneiðunum út í og þrýstið þeim létt með skeið til að losa aðeins um safann.
Hellið Galliano Amaro Bitter og Kylie Minogue Prosecco yfir.
Toppið með Sprite og hrærið varlega saman.
Skreytið með appelsínusneið og ferskri myntu ef vill. Berið fram strax.




Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments