top of page

JARÐARBERJA- & BASIL MARGARITA

  • Feb 10
  • 1 min read

Ferskur, litríkur og ómótstæðilega góður drykkur. Blanda af sætum jarðarberjum, basilíku og klassísku margaritu bragði. Ótrúlega bragðgóður og sumarlegur drykkur.



Fyrir einn kokteil 60 ml tequila

30 ml safi úr lime

30 ml Cointreau

1 tsk hunang

4–5 Driscoll’s  jarðarber, skorin í tvennt

4 fersk basilíku lauf

Klakar

Fyrir glasbrúnina:

Gróft salt

Lime til að bleyta glasið


Aðferð:

  1. Byrjið á að væta glasbrúnina með lime báti og dýfið í salt ef þið viljið saltkant.

  2. Setjið jarðarber og basil í kokteilhristara og maukið létt með muddleri eða skeið.

  3. Bætið við tequila, Cointreau, safa úr lime, og hunangi. Fyllið með klökum og hristið vel í um 15 sekúndur.

  4. Hellið í glas í gegnum sigti og bætið klökum út í. 

  5. Skreytið með ferskri basiíku og njótið.


Skál & njótið!🥂

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page