top of page
Search


ÍSTERTA MEÐ JARÐARBERJUM & DAIM
Þessi klassíska og ljúffenga Daim ísterta sem mamma gerir svo oft en í aðeins öðruvísi búning. Ég einfaldaði aðeins með því að kaupa tilbúinn ís. Marengsbotn með möndlum sem minnir á sörur, rjómaís, stökkt Daim og fersk jarðarber. Fullkomin terta til að gera fyrirfram og geyma í frysti. Botn 3 eggjahvítur 150 g sykur 150 g saxaðar möndlur Fylling 1 stórt box vanillu rjómaís (700 g) 3–4 Daim plötur 150 g Driscoll’s jarðarber Til skrauts Jarðarber & saxað Daim Aðferð Hitið ofni


FRENCH TOAST MUFFINS
Það er eitthvað sérstaklega notalegt við að baka French Toast muffins. Ilmurinn af kanil og vanillu er aðeins of yndisleg! Þessi uppskrift er fullkomin í helgarbrönsinn, í kaffiboðið eða bara þegar þið viljið dekra við ykkur. Með ferskum Driscoll’s jarðarberjum og hindberjum fær rétturinn bæði ferskleika og lit, og ef þið viljið gera þetta enn betur við ykkur þá passar ískalt prosecco sérlega vel með. 260 g súrdeigsbrauð (eða fransbrauð), skorið í litla bita 4 stk egg ½ dl mj


BLÁBERJA- & SÍTRÓNUKAKA
Ótrúlega mjúk og bragðgóð kaka með fersku sítrónubragði, fullt af bláberjum og sítrónuglassúr. Fullkomin með kaffibolla, í helgarbaksturinn. 4,2 dl hveiti 2,4 dl sykur 2 tsk lyftiduft 1/4 tsk salt 2,4 dl hrein jógúrt 3 stór egg 2 tsk fínt rifinn sítrónubörkur 1/2 tsk vanilludropar 1,2 dl brætt smjör 2 tsk hveiti 2 dl bláber frá Driscoll's Sítrónuglassúr 2 dl flórsykur 2 msk sítrónusafi 1–2 msk mjólk (ef þarf) Aðferð Hitið ofninn í 200°C eða 180°C á blæstri. Klæðið ílangt form


RICOTTA PÖNNUKÖKUR MEÐ BLÁBERJUM & SÍTRÓNU
Við elskum þessar pönnukökur! Ricotta osturinn gerir þær svo mjúkar og léttar og bláberin með sítrónunni gefa þeim ótrúlega ferskt bragð. Mæli með að prófa þessar ef þið viljið eitthvað aðeins öðruvísi en þessar venjulegu pönnukökur. 2,4 dl hveiti 2 msk sykur 2 tsk lyftiduft ½ tsk salt 2 dl mjólk 85 g smjör, brætt 2 egg, aðskilin (hvítur og rauður í sitthvora skálar) 1 tsk vanilludropar 170 g ricotta ostur 1 tsk fínt rifin sítrónubörkur 150 g fersk Driscoll's bláber Aðferð: 1


JÓGÚRTKAKA MEÐ BERJUM & HVÍTU SÚKKULAÐI
Þessi jógúrtkaka er ótrúlega einföld, fersk og létt sem gerir hana að fullkomnum léttum eftirrétti. Stökkur botn úr LU kexi, silkimjúk jógúrtfylling og toppuð með Driscoll’s berjum og bræddu hvítu súkkulaði. 150 g LU Bastogne Duo (með kanil og möndlubragði) 60 g smjör, brætt Fylling 3 dl grísk jógúrt 1,5 dl þeyttur rjómi 3 msk flórsykur 1 tsk vanilludropar Toppur Driscoll’s jarðarber, bláber, brómber og hindber 80g hvítt súkkulaði, brætt Aðferð Setjið LU kexið í matvinnsluvél


BOLLUR MEÐ BLÁBERJUM & KARAMELLU
Einfaldar og gómsætar vatnsdeigsbollur fylltar með Wearther's karamellum og bláberjarjóma. Fullkomnar í bolludagskaffinu! 6 litlar vatnsdeigsbollur (ég keypti tilbúnar í þetta skiptið) Karamellusósa (dugar fyrir fleiri bollur) 1 poki Werther’s karamellur ½ dl rjómi 5 msk flórsykur Bláberjarjómi 3 dl rjómi 150 g Driscoll's bláber 2 msk flórsykur 1 tsk vanillusykur Toppa með: Driscoll's bláber Flórsykur til að sigta yfir Aðferð Byrjið á því að setja Werther’s karamellurnar og r


JARÐARBERJA- & BASIL MARGARITA
Ferskur, litríkur og ómótstæðilega góður drykkur. Blanda af sætum jarðarberjum, basilíku og klassísku margaritu bragði. Ótrúlega bragðgóður og sumarlegur drykkur. Fyrir einn kokteil 60 ml tequila 30 ml safi úr lime 30 ml Cointreau 1 tsk hunang 4–5 Driscoll’s jarðarber, skorin í tvennt 4 fersk basilíku lauf Klakar Fyrir glasbrúnina: Gróft salt Lime til að bleyta glasið Aðferð: Byrjið á að væta glasbrúnina með lime báti og dýfið í salt ef þið viljið saltkant. Setjið jarðarber


OFNBÖKUÐ PÖNNUKAKA (DUTCH BABY PANCAKE)
Ofnbökuð pönnukaka eða Dutch Baby Pancake með nóg af berujum er fullkomið fyrir helgarbrönsinn þegar ykkur langar í eitthvað extra gott. Stór mjúk pönnukaka sem er létt og góð þegar hún lyftist í ofninum. Berið fram með ferskum Driscoll’s berjum, smjöri, flórsykri og sírópi. Auðvelt og fljótlegt að framkvæma. Deigið blandast á nokkrum mínútum og restin sér um sig! 6 stór egg 2,4 dl hveiti 2,4 dl nýmjólk 25 g sykur (2 msk) 2 tsk vanilludropar ¼ tsk salt 60 g smjör Berið fram m


RÓSAVÍNS SANGRÍA BERJUM & FERSKJUM
Ljúffeng og létt sangría með rósavíni, Cointreau, jarðarberjum, hindberjum, appelsínu, hunangi og smá sódavatni. Fullkomin til að njóta í góðum félagsskap á sumrin eða bara þegar ykkur langar í eitthvað ljúffengt og fagurt í glasi. 1 flaska Adobe Rosé Reserva (750 ml) Safi úr 1 appelsínu (ca. ½ dl) 1–2 ferskjur, skornar í þunnar sneiðar 2 dl Driscoll’s jarðarber, skorin í sneiðar 1-2 dl Driscoll’s hindber 4 msk Cointreau (má minnka fyrir mildari útgáfu) 2 msk hunang (smakkið


PÁSKA EFTIRRÉTUR MEÐ HINDBERJUM & MINI EGGJUM
Fljótlegur og fallegur eftirréttur með marengs, hindberjum og Cadbury mini eggjum! Fullkominn fyrir páskana, allt sett í litlar skálar og toppað með Cadbury mini eggjum og bræddu hvítu súkkulaði. Þið getið keypt tilbúinn marengsbotn til að einfalda ferlið og einblínt á að njóta. Uppskrift fyrir 6 1 marengsbotn (tips: þægilegt að kaupa bara tilbúinn) 4 dl rjómi 125 g fersk hindber frá Driscoll’s (mest notuð stöppuð, smá tekin frá til að skreyta) 1 tsk vanilludropar 3 msk flórs
bottom of page