JÓGÚRTKAKA MEÐ BERJUM & HVÍTU SÚKKULAÐI
- Feb 25
- 1 min read
Updated: Feb 26
Þessi jógúrtkaka er ótrúlega einföld, fersk og létt sem gerir hana að fullkomnum léttum eftirrétti. Stökkur botn úr LU kexi, silkimjúk jógúrtfylling og toppuð með Driscoll’s berjum og bræddu hvítu súkkulaði.

150 g LU Bastogne Duo (með kanil og möndlubragði) 60 g smjör, brætt
Fylling 3 dl grísk jógúrt 1,5 dl þeyttur rjómi 3 msk flórsykur 1 tsk vanilludropar
Toppur Driscoll’s jarðarber, bláber, brómber og hindber 80g hvítt súkkulaði, brætt
Aðferð
Setjið LU kexið í matvinnsluvél og maukið þar til það verður að fínum mulningi.
Hellið brædda smjörinu út í og blandið vel saman.
Þrýstið blöndunni í botninn eldfast form eða skál og setjið í kæli á meðan þið gerið fyllinguna.
Blandið grísku jógúrtinni saman við flórsykur og vanilludropum.
Þeytið rjóma og blandið varlega saman við jógúrtblönduna þar til fyllingin verður létt og loftmikil.
Hellið fyllingunni yfir botninn og sléttið vel úr.
Setjið kökuna í kæli í að minnsta kosti 4 klst, helst yfir nótt ef þið nennið.
Rétt áður en þið berið kökuna fram toppið þið hana með berjum.
Bræðið hvíta súkkulaðið yfir vatnsbaði og dreifið yfir berin.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes











Comments