OSTAKAKA MEÐ JARÐARBERJUM
- Jan 18
- 1 min read
Þessi ostakaka er fersk og á vel við sem eftirréttur eftir góða máltíð. Ég nota jarðarber frá Driscoll’s í uppskrifina en þau eru einstaklega bragðgóð og falleg. Hvítt súkkulaði gerir svo ostakökufyllinguna einstaklega ljúffenga. Það er algjör snilld að útbúa ostakökuna daginn áður, geyma í frysti og dreifa jarðaberjunum yfir áður en þið berið hana fram.

1 pkn Lu Digestive kex 120 g smjör 2 pkn Philadelphia rjómaostur 3,5 dl rjómi 2 tsk vanilludropar 100g hvítt súkkulaði 2 msk flórsykur 300-400 g jarðarber frá Driscoll’s 2 msk jarðarberjasulta
Aðferð
Byrjið á því að mylja kexið í matvinnsluvél og bræðið smjör við vægan hita. Blandið smjörinu saman við kexið.
Setjið bökunarpappír í hringlaga 21 cm kökuform. Ég smyr botninn og hliðarnar á forminu með smá smjöri til að festa pappírinn betur. Klippi hring fyrir botninn og renning fyrir hliðarnar úr pappírnum og legg hann í formið.
Dreifið kexblöndunni í kökuformið og þjappið með skeið eða höndunum. Geymið í frystinum á meðan þið útbúið fyllinguna.
Þeytið rjóma og takið til hliðar.
Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og passið að það verði ekki of heitt. Blandið súkkulaðinu saman við rjómaostinn, flórsykurinn og vanilludropana.
Blandið rjómaostablöndunni vel saman við rjómann með sleif og dreifið yfir kexbotninn. Frystið í klst eða meira.
Skerið jarðarber í fjóra bita og hrærið saman við jarðarberjasultu. Látið standi í 10 mínútur og toppið kökuna með berjunum. Njótið.





Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes















Comments