top of page

LJÚFFENG OSTAKAKA Í GLÖSUM

  • Jan 3
  • 1 min read

Ostakaka með TUC kexi og Milka toffee creme súkkulaði. Þessi ostakaka er brjálæðislega ljúffeng og auðveld í undirbúningi. Fullkominn eftirréttur sem gott er að gera með smá fyrirvara, geyma í ísskápnum og skella ferskum berjum ofan á þegar það á bera þetta fram.


Fyrir 4-6 1 pakkning Tuc kex 100 g brætt smjör 2 ½ dl rjómi 200 g Philadelphia rjómaostur 2 msk flórsykur 100 g Milka toffee creme 2 msk rjómi Fersk ber

Aðferð:

  1. Bræðið Milka toffee creme í potti ásamt 2 msk rjóma og blandið saman. Takið til hliðar og látið kólna.

  2. Bræðið smjörið. Myljið Tuc kexið í matvinnsluvél og hrærið saman við smjörið.

  3. Dreifið blöndunni í falleg glös.

  4. Setjið í kæli á meðan þið gerið rjómaostablönduna.

  5. Hrærið saman rjómaosti og flórsykri. Hellið Milka súkkulaðinu saman við og hrærið.

  6. Þeytið rjóma og blandið saman við rjómaostablönduna.

  7. Dreifið blönduna ofan á tuc kexið og kælið.

  8. Toppið kökuna með berjum og Milka toffee creme mulningi.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page