top of page

SÚKKULAÐIMÚS MEÐ DAIM

  • Jan 3
  • 1 min read

Það er svo þægilegt hvað þessi súkkulaðimús er fljótleg í bígerð en það er einungis fjögur hráefni í henni.  Ég geri hana margoft sem eftirrétt í matarboðum og hún slær alltaf í gegn. Tilvalið að gera hana daginn áður. Mæli með að bera músina fram með ferskum berjum og jafnvel þeyttum rjóma. Hér toppa ég hana með litlum Cadbury súkkulaðieggjum, hindberjum og smá Daim Milka súkulaði.


Fyrir 6

150 g Milka súkkulaði með Daim

2 msk smjör (30 g)

2 eggjarauður

1 ½ dl rjómi

Aðferð

  1. Bræðið súkkulaði og smjör yfir vatnsbaði.

  2. Hrærið tveimur eggjarauðum með skeið við súkkulaðibráðið. Súkkulaðið er svolítið þykkt en þegar þið hrærið rjómanum saman við þá verður þetta fullkomið.

  3. Léttþeytið rjóma og hrærið honum varlega saman við súkkulaðið með skeið.

  4. Dreifið músinni í 6 glös og geymið í ísskáp í 1 klst eða lengur.

  5. Gott að bera fram með ferskum berjum og þeyttum rjóma.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page