JARÐARBERJABAKA MEÐ KARAMELLUFYLLTU SÚKKULAÐI
- Jan 3
- 1 min read
Dásamleg jarðaberjabaka sem er alltaf jafn góð, einföld og ullkomin eftirréttur! Milka með toffee creme fer með kökuna á annað level og setur punktinn yfir i-ið! Eina sem þarf í bökuna eru fersk jarðaber, hveiti, sykur, smjör og Milka súkkulaði. Mér finnst best að bera hana fram með ís (rjómi er líka góður).

Fyrir 3-4 300 g jarðarber 100 g smjör við stofuhita 100 g sykur 100 g hveiti Milka með toffee creme
Aðferð
Skerið jarðaberin í tvennt, leggið þau í eldfast mót.
Blandið saman með höndunum smjöri, sykri og hveiti.
Dreifið deiginu yfir jarðarberin og að lokum Milka súkkulaðinu yfir deigið.
Bakið við 190°C í ca. 40 mínútur.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes

Comments